Alveg hreint brjálað að gera hjá mér í Reykjarvíkurferðum þessa dagana! Eða reyndar fór ég nú bara í Kópavog á föstudaginn en ég keyrði allavena :) Smá ferð til að eyða peningum, það hafa allir gott af því endrum og sinnum. Við Bebba og Bergrún Dögg fórum allar saman, sannkölluð pæjuferð! Við fórum í Smáralindina og fengum smá forskot á Idol- kvöldið því við heyrðum í keppendunum æfa sig. Ég tilkynni það hér með að ég held með Davíði Smára :) samt fílaði ég hann alls ekki fyrst og Hildur Vala er algjört æði enda á hún eftir að vinna (eins og allir vita). Núna er stefnan svo tekin á Bangsaköku, er að fara að baka handa Dögginni minni og hún ætlar að sjálfsögðu að hjálpa mér :)
Það er parket og flísar á fína húsinu mínu en þessa dagana er samt teppalagt - eða eitthvað í þá áttina því ég fer svo mikið úr hárum að það hálfa væri á við tvo kálfa! Hins vegar er ég búin að vera svakalega dugleg og klippa dúllurnar mínar sem að eru svo sérstök að fá klippingu hjá mér :) Bergrún Dögg snúllan mín var fyrst í röðinni. Svo klippti ég hann Bjarna minn (inní eldhúsi eitt kvöldið þegar krúsídúllurnar okkar voru sofnuð) og það geri ég ekki aftur því þessi blessuðu hár þau fara út um ALLT. Svo klippti ég hann pabba minn og mamma fékk bæði strípur og klippingu. Svo er Lilli Bró búinn að panta hjá mér. Hörkudugleg Ég :) Þá er kannski bara kominn tími á sjálfa mig - það mundi enginn trúa mér ef ég segði að ég væri "búin" að læra hárgreiðslu miðað við hvernig ég lít sjálf út um hausinn. Svo kemur Bergrún Dögg stundum til mín hálf vælandi og segir "ðööö" og rekur útúr sér tunguna og þá er hár á tungunni hennar. Svo ég tali nú ekki um allt hárið sem að safnast saman í hárkúlur í þurrkaranum!
Sá merkilegi hlutur gerðist í vikunni að ég fór í bæinn, þá var ég ekki búin að fara í bæinn í FJÓRA mánuði! Ég segi nú samt bara VÁ hvað tíminn líður þá hratt því mér finnst ekkert vera fjórir mánuðir síðan. Við fórum með litla snúðinn okkar hann Sæþór Elí til læknis, en það var allt í góðu lagi svo við erum mjög ánægð :) Svo fór ég í nokkrar búðir (náði að versla aðeins í þeim öllum) og á meðan biðu snúllarnir mínir Bjarni og Sæþór Elí útí bíl. Gaman! Ég er svo skrítin mamma sem að vil ekkert vera að fara með litla gullmolann minn inní búðir og á staði þar sem er mikið af fólki á meðan hann er svona lítill. Hann var ekkert smá góður allan tímann, þar er sko munur á systkynunum því að Bergrúnu Dögg þótti sko ekki gaman í bíl og þykir eiginlega ekkert gaman enn. Það sannaðist líka að ég er kolrugluð, ég fór inní Hagkaup og sá þar voða sætan bol sem á stóð "ég er sætastur" ég ætlaði að kaupa hann, hann var röndóttur svo sá ég hann bláan og ákvað að kaupa hann frekar. Svo þegar ég kom út í bíl og ætlaði að sýna Bjarna bolinn þá stóð bara eitthvað allt annað á honum, var meira að segja smá tíma að fatta það "ég er prins" en drengurinn minn er bæði sætastur og algjör prins svo að þetta er allt saman í góðu lagi, nema þá sjónin í mér!
Við hjónakornin (eða kannski má ekki skrifa svoleiðis um ógift fólk?) allavena þá erum við algjörir snillingar! Núna í vikunni þá var Bjarni minn að fara út í búð þegar hann uppgötvaði að veskið hans var ekki á sínum stað (er ALLTAF á sínum stað) og eftir smá leit og upprifjanir þá komumst við að þeirri niðurstöðu að hann hafði notað það síðast kvöldið áður í 10-11. Hann var einmitt að fara þangað að versla og viti menn veskið hans var þar! Afgreiðslukonan var nú frekar hissa á því hversu lengi verskið var búið að vera þarna, í næstum sólahring, skrítinn veskiseigandi það! En þá mundi ég eftir að þegar ég var að vinna á Hár-inn fyrir nokkrum árum síðan (WHAT) þá fór ég nú stundum út í 10-11 sem og ég gerði einn daginn kannski svona uppúr tvö. Svo um kvöldið eða um sex leytið þegar ég ætlaði að halda heim á leið úr vinnu að sjálfsögðu á bílnum mínum, þá fann ég ekki lyklana. Mundi svo eftir að ég hafði farið í 10-11, ekki á bílnum samt svo það sé á hreinu :). Viti menn lyklarnir voru þar (veit samt ekki af hverju ég hafði haft þá með mér þangað!?!) sá sem var að afgreiða sagði við mig "þeir eru sko búnir að vera hérna í allan dag" og hefur eflaust hugsað hversu rugluð ég væri að gleyma bílnum mínum í búðinni!
Hvernig væri með þetta blessaða veður að fara að vera aðeins stabílla (eða eitthvað). Þannig er nefnilega mál með vexti að ef að ég ætla með börnin mín yndislegu út að labba þá kemst ég ekki með bæði vagn og kerru, það yrði allavena eitthvað klaufalegt. Þannig að við erum búin að fá okkur pall til að setja á vagninn og þar getur Bergrún Dögg staðið á(allavena annað slagið, hún þarf auðvitað að labba). En það er ekki hægt að vera með pallinn í þessu slabbi. Ég er búin að prófa það! Ekki er heldur hægt að fara á snjóþotunni því það er enginn snjór á gangstéttum og götum. Svo það væri ágætt ef að það væri annað hvort snjór eða bara alls enginn snjór, ekkert svona hálkák.
Ég velti því nú vel og lengi fyrir mér hvort ég ætti að gerast bloggari. Mig langaði það en það truflaði mig alltaf atriðið í Svínaspunni þegar þeir voru að gera grín af bloggurum :) Ég er svo hrikalega eitthvað !?!?! veit ekki einu sinni hvað. En svo ákvað ég bara að slá til og þá er bara að vona að það uppgötvi mig einhver, ég er búin að senda nokkrar vísbendingar út á vefinn en þær virðast ekkert vera að skila sér. Það gerist auðvitað ekkert á einni nóttu!
Spurning um að standa sig finnst að maður er byrjaður á þessu! Alltaf nóg að gera, svo þegar maður ætlar að setjast niður síðla kvölds og tjá sig eitthvað þá er heilinn bara því miður kominn í pásu..... svo er það alltaf jafn skrítið hvað tíminn líður og líður. Kannski maður sendi bara tillögu um að láta lengja sólahringinn um nokkrar klukkustundir, eins og svona þrjár til fjórar. Stóra spurningin er bara hvert maður á að senda það?!? Allavena þá er ég obboslega ánægð með bleiku síðuna mína og með hjálp elskulega mannsins míns gat ég gert það sem mig langaði, ennnnn ég gat samt gert ýmislegt ein!