Hvernig væri með þetta blessaða veður að fara að vera aðeins stabílla (eða eitthvað). Þannig er nefnilega mál með vexti að ef að ég ætla með börnin mín yndislegu út að labba þá kemst ég ekki með bæði vagn og kerru, það yrði allavena eitthvað klaufalegt. Þannig að við erum búin að fá okkur pall til að setja á vagninn og þar getur Bergrún Dögg staðið á(allavena annað slagið, hún þarf auðvitað að labba). En það er ekki hægt að vera með pallinn í þessu slabbi. Ég er búin að prófa það! Ekki er heldur hægt að fara á snjóþotunni því það er enginn snjór á gangstéttum og götum. Svo það væri ágætt ef að það væri annað hvort snjór eða bara alls enginn snjór, ekkert svona hálkák.