Það er parket og flísar á fína húsinu mínu en þessa dagana er samt teppalagt - eða eitthvað í þá áttina því ég fer svo mikið úr hárum að það hálfa væri á við tvo kálfa! Hins vegar er ég búin að vera svakalega dugleg og klippa dúllurnar mínar sem að eru svo sérstök að fá klippingu hjá mér :) Bergrún Dögg snúllan mín var fyrst í röðinni. Svo klippti ég hann Bjarna minn (inní eldhúsi eitt kvöldið þegar krúsídúllurnar okkar voru sofnuð) og það geri ég ekki aftur því þessi blessuðu hár þau fara út um ALLT. Svo klippti ég hann pabba minn og mamma fékk bæði strípur og klippingu. Svo er Lilli Bró búinn að panta hjá mér. Hörkudugleg Ég :) Þá er kannski bara kominn tími á sjálfa mig - það mundi enginn trúa mér ef ég segði að ég væri "búin" að læra hárgreiðslu miðað við hvernig ég lít sjálf út um hausinn. Svo kemur Bergrún Dögg stundum til mín hálf vælandi og segir "ðööö" og rekur útúr sér tunguna og þá er hár á tungunni hennar. Svo ég tali nú ekki um allt hárið sem að safnast saman í hárkúlur í þurrkaranum!