Meyja með meiru!!!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Það fer nú alveg að líða að því að ég missi lesendur mína og ég sem er rétt nýbyrjuð að safna!
En ég hef barasta mjög lítið tölvast undanfarið, það er svo sem alveg nóg að gera hjá manni :) Svo er ég svo hrikalega mikil meyja og það sem felst í því er að það þarf allt að vera "svona" og stundum taka hlutirnir aðeins lengri tíma en þeir gætu gert undir eðlilegum kringumstæðum (þeir skilja sem að vilja skilja :)
Enn ein Reykjarvíkurferðin í dag og haldiði að lillinn minn hann Sæþór Elí hafi ekki bara fengið að fara með í Smáralindina! Við fórum öll saman fjölskyldan. Ég keypti mér föt sem að ég var mjög fljót að finna mér og er ánægð með þau, það finnst mér alveg magnað. Yfirleitt tekur það ansi langan tíma! En svona er að vera mamma :) það er yndislegast í heimi! Fór í fermingarveislu síðustu helgi og tveimur mínútum áður en að við lögðum af stað átti ég eftir að mála mig og var ekki lengi að skvetta einhverju framan í mig. Rak svo augun í spegil í veislunni og það var ekki alveg mín flottasta frammistaða framan í mér, svo að mamman er sennilega að breyta meyjunni!