Mæli með því.....!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Þvottur er uppáhalds heimilisverkið mitt, mér finnst sem sagt mjög gaman að þvottast og tóm þvottakarfa er markmiðið! Það er svo gaman þegar hún er tóm :) En þessa dagana er ég hreinlega með ofnæmi fyrir þvottinum, það er endalaus þvottur og ég nenni eiginlega ekki að þvo og sama hvað ég þvæ mikið það er alltaf allt fullt af þvotti. En mér finnst leiðinlegast að taka til í eldhúsinu eða ég nenni ekki að byrja á því, það er svo sem ekkert leiðinlegt þegar maður er byrjaður á því.
En ég er sko ekkert að reyna að selja ykkur Enjo eða eitthvað svoleiðis, fékk mér reyndar slatta af vörunum núna um daginn and I love them :) Þær eru frábærar! Ég var að vísu að hugsa um að fara að selja þær einhvern tímann á næstunni en ég er hætt við, það hentar mér bara ekki :) Ég ætla að vera heima hjá snúllunum mínum og var að spá í þessu svona að gamni, svona smá kvöldskrepp með gróða :) En ég er engu að síður hætt við svo ég reyni ekki að selja ykkur neitt, vörurnar eru samt frábærar, mæli með þeim :)
Jæja ég er að fara að fela páskaegg :)