Titillinn endurheimtur!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Þá get ég loksins látið sjá mig á meðal fólks aftur! Ég fór nefnilega í vikunni og lét gera hárið á mér fínt. Svo nú hef ég endurheimt titilinn "Aðal gellan í bænum".
Prófaði að boozta í dag og það var bara "mjög gott" (eins og Bergrún Dögg segir alltaf). Þau feðginin smökkuðu þetta líka svo ég gerði tvo skammta og í þann seinni setti ég banana. (óþarflega miklar upplýsingar? nei það er tilgangur með að ég sé að segja þetta allt:) Þannig er nefnilega að eins mikið og mig langar að borða banana þá bara get ég það ekki! Skil það ekki ég kúgast þvílíkt ef að ég borða banana, hélt að ég gæti borðað hann ef að ég setti hann út í svona boozt, en nei - kom þessu reyndar alveg niður en kúgaðist samt en ekki eins mikið og ef að ég er að borða hann einan sér - þá bara kem ég honum ekki niður :) Þvílíkt svindl því það er svo þægilegt að borða banana, fljótlegt og maður verður saddur af honum og mér finnst hann ekkert vondur á bragðið en mér klígjar samt við honum!?! Skil þetta bara ekki. Gat að vísu borðað banana þegar ég var ófrísk af Bergrúnu Dögg enda er banani í miklu uppáhaldi hjá henni :)
Í vikunni vorum við, ég og börnin mín yndislegu saman útá leikvelli. Sæþór Elí að vísu sofandi í vagninum sínum :) en Bergrún Dögg var að róla og ég að ýta henni (þetta var á leikvellinum hjá pulsuvagninum) þá kemur manngrey sem að ætlaði að fara að fá sér að eta og það vildi þannig til að hann var á station bíl sem var ekkert ósvipaður á litinn og okkar. En allavega þá kallar Döggin mín á hann "pabbi" og ég segi henni að þetta sé ekki pabbi en hún kallar samt aftur "pabbi" og segir svo "þetta er ekki pabbi". Það var nú doldið skondið :)