DÓNASKAPUR!!!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Hvað er fólk að hugsa þegar að það hringir um miðja nótt inná heimili?!? Þar að auki þar sem að það eru tvö lítil börn. Það gerðist allavega á þessu heimili í nótt og varð ég reið, já hvort ég varð -urrr.... alveg brjáluð. Svo vaknaði litli prinsinn og var ekkert á því að fara að sofa strax og ég átti erfitt með að sofna aftur. Svo hringdi manneskjan TVISVAR því að í fyrra skiptið skellti ég á (hélt að þetta væri bara óvart hringing því það var ekkert sagt í símann). Ég fékk nú líka algjört sjokk, hélt að eitthvað hræðilegt hefði gerst því að það hringir nú enginn bara svona að gamni sínu í mann um miðja nótt.

En jákvæðari hlutir :) Við fórum með Bergrúnu Dögg í leikhús í gær. Fórum á Hans og Grétu í Frumleikhúsinu hérna í sunny Kef (eins og Bjarni minn segir). Það var alveg æðislega gaman og skemmti prinsessan sér alveg rosalega vel og við foreldrarnir líka!