Við skötuhjúin skelltum okkur bara út að borða og í bíó í gærkveldi :) Svakalega flott á því! Það var nú minn heittelskaði sem að bauð mér í herlegheitin. Og bestu barnapíurnar pössuðu fyrir okkur, sem eru auðvitað mamma og pabbi :) Við fórum á Fridays og var það alveg ljómandi góður matur sem að við fengum. Ég fékk mér kjúklingasalat og Bjarni einhverskonar kjúklingarétt. Ætluðum á Pizza Hut og fórum reyndar þangað, vorum sest niður og allt en ákváðum svo bara að standa upp og fara yfir á næsta stað :) Sáum sko ekki eftir því! Til að toppa allt saman fórum við í lúxussalinn í bíóinu, höfum aldrei prufað það áður og munum eflaust bara fara þangað framvegis :) eða kannski ekki alveg. En það var allavega þvílíkur lúxus, svo salurinn ber nafnið með réttu!