Já það er víst voða gaman að hringja í mig til að "bögga" mig :) Ég barasta verð að segja frá símtali sem að ég fékk einu sinni. Það var sem sagt hringt frá einhverju styrktarfélagi og spurt um Bjarna. Hann var ekki heima svo að ég sagði manninum að svo væri, þá spyr maðurinn hvar hann sé og ég spyr hann þá hvað hann vilji honum og hann útskýrir það (sem sagt sníkir eitthvað). Ég segi honum að við höfum ekki áhuga en hann spyr mig samt hvort að Bjarni sé með gsm síma, ég segi nei hann er ekki með gsm síma (frekar hneiksluð - af hverju hlustar hann ekki á mig). Hann gefst ekki upp og vil vita hvar Bjarni sé eiginlega, í hneikslutón segi ég "hann er bara út í búð" (veit ekki af hveju ég sagði honum það). Þá heimtar karlfíflið númerið í búðinni, ég hélt að andlitið mundi detta af mér og ég kvaddi hann bara. Daginn eftir hringdi Bjarni í þetta styrktarfélag og kvartar yfir framkomu þessa manns og við gefum upp símanúmerið sem að hann hringdi úr. En maðurinn í símanum kannaðist ekki við númerið (samt var það mjög líkt númerinu sem að félagið er skráð fyrir)?!? Alveg er ég meira að segja viss um að það hafi verið karlinn sjálfur. Nema hvað, svo núna í vikunni er aftur hringt frá þessu sama og ég er alveg viss um að það hafi verið sama karlfíflið!! Var með númeraleynd í þetta skiptið. Talaði ógeðslega lágt og ég ætlaði aldrei að getað neitað honum því hann stoppaði ekki. Plús það að hann hringdi klukkan 21:40. Ég ætla allavega að fá mér rautt x við númerið okkar!!!