Ég er alveg að flippa á þessu græna :) Eða svona, það er allavega mjög orkugefandi og frískandi. Ég er sem sagt að tala um grænt te. Mæli sko alveg með þessu tei. Þetta er teið sem að fæst í Hagkaup (held að Solla græna flytji það inn). Vá þetta er að breytast í einhverja meðmæla síðu! Ísskápurinn er einmitt fullur (blindfullur) af grænmeti og ávöxtum. G og Á eru alveg í meirihluta í skápnum, sem er mjög gott mál. Það er líka búið að henda hveitinu út í tunnu og speltið hefur eignast plássið sem að það hafði. Það er gaman af þessu! Þá er bara að vita hvað það gengur lengi, ég er allavega vongóð í augnablikinu. Sama hvað gerist þá hætti ég EKKI að drekka græna teið. Það er alveg nauðsynlegt, enda mælir manneldisráð með að maður drekki grænt te á hverjum degi.