Ég er farin að skilja hana Bebbu mína :) Þá er ég að meina núna skil ég hvað hún var spennt þegar ég var að eiga snúllurnar mínar. Ég stekk upp ef að ég heyri sms í símanum mínum - viss um að hún sé að senda mér að það sé allt komið á fullt og ég verð alveg hoppandi glöð þegar að hún hringir í mig. Ég er sko spennt :)
Nema hvað ég átti bæði krúttin mín fyrir settan dag svo ég veit nú ekki hvað það er að bíða, þá er ég að meina bíða "eftir settan dag" því ég var nú alveg farin að bíða. En ég vona að það fari allt að gerast hjá henni elskunni :)