Fína eldhúsið mitt :)


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Frábær helgi að baki (segi ég á miðvikudegi) en hún var það samt þó að það séu liðnir þrír dagar síðan :) Við fórum upp í bústað og höfðum það hrikalega gott, það er alveg nauðsynlegt að komast aðeins í "sveita"sæluna úr ösinni og SLAKA Á. Við fórum í sund á Selfossi, lillinn var að fara í sund í fyrsta skipti, það er þessi fína innilaug þarna (meira en hægt er að segja um Kef).

Svo var ég alveg hrikalega dugleg og tók eldhúsið mitt alveg frá a-ö í gærkvöldi. Ég er í einhverju svona "taka í gegn - sortera" stuði og reyni að nýta mér það að sjálfsögðu en mestmegnis á kvöldin, það gengur svona la-la á daginn með gríslingana mína í eftirdragi :)

Díí... þessir bæjarstarfsmenn... urr.... ég er að reyna að ná í eina svoleiðis kerlingu en það bara gengur ekki neitt! Hún veit greinilega hvað ég ætla að vera brjáluð við hana svo að hún er annaðhvort upptekin eða ekki við þegar að ég hringi. Svo er bara opið þarna frá 9-15:30, lokað í hádeginu, alveg hreint fáránlegt!