Ég er skíthrædd við þessi fljúgandi flikki! Verð bara að viðurkenna það. Heimskulegt að vera hrædd við eitthvað sem að er skriljón sinnum minna en ég :) Já ég er að tala um býflugur og geitunga. Þetta er algjör vibbi... Ég kem eflaust mörgum fyrir sjónir eins og fáviti að sumri til..... ef að ég sé svona kvikindi þá stekk ég til og hleyp alveg á miljón eitthvað út í bláinn. En ég er nú eiginlega með fóbíu fyrir ÖLLU sem að flýgur (nema Superman). Skíthrædd við fugla! Samt vildi ég einhverra hluta vegna fara í kríueggjaleit með mömmu þegar ég var yngri. Var alveg að farast úr hræðslu :) Man meira að segja eitt skipti sem að ég hreinlega fór að grenja... og var 12 ára! Við Bjarni vorum eitthvað að flakka um fjölvarpið í gærkvöldi þegar að við fundum Smallville (Superman) sem að er minn uppáhalds þáttur. En hann var reyndar talsettur á frönsku (eða þýsku, man það ekki) svo að ég læt það nú sennilega vera að horfa á það. En það er alveg brandari út af fyrir sig að sjá myndir og þætti sem að er búið að talsetja hvort sem að það er á þýsku, frönsku, spænsku eða einhverju öðru :)