Mjög svo viðburðarík helgi að baki! Á föstudaginn nutum við, ég og börnin mín veðurblíðunnar og eyddum mestum hluta dagsins utandyra. Vonandi fáum við sem best sumar svo maður geti dynglst úti sem mest :) Á laugardagskvöldið var ég (ásamt fleirum) svo boðin út að borða með Óla og Sveinu því að Óli var að útskrifast úr Listaháskólanum. Hallur kom með mér og við viltumst svona passlega bara :) En já svo erum við öllsömul kominn á staðinn og í góðum gír þá segir Óla Sól okkur að mamma sín og pabbi væru búin að gifta sig :) þau höfðu sem sagt gift sig um daginn:) Ég var svona smá stund að kveikja á perunni en mér finnst þetta alveg yndislegt hvernig þau gerðu þetta. Við fengum svo að sjá videóupptöku af athöfninni og hún var alveg æðislega falleg :) þó að ég hafi auðvitað viljað fá að vera þar. Þau eru alveg æðisleg og þau ljómuðu :) Verst að ég var búin að æfa sönginn og hann verður ekkert nýttur þannig að ef það er einhver þarna úti sem að vantar söng í brúðkaupið hjá sér þá bara hafa samband :) Í dag fór ég með börnin mín í afmæli hjá Sylvíu Björt. Það lá ekkert allt of vel á þeim, Bergrún Dögg hafði vaknað 6:30, hún var samt mjög spennt að fara í afmælið en hékk alveg utan í mér og grenjaði ef að ég hvarf úr augnsýn. Sæþór Elí var aðeins pirraður en samt svo góður :) En frábær helgi í alla staði þó að karlinn hafi verið að vinna alla helgina.......