Ég er að verða lélegasti bloggarinn, vil ekki að það gerist svo það er best að gera eitthvað í því :) Var nú reyndar frekar brjáluð í gærkvöldi þegar að ég var búin að blogga alveg helling en nei nei þegar ég ætlaði að posta því þá var blogger.com niðri í klukkutíma og færslan mín týnd og tröllum gefin! Við erum búin að vera í "orlofi" út í Garði á meðan mamma og pabbi voru úti, fínt að skipta aðeins um umhverfi. Svo var auðvitað frænkupartýið á föstudaginn, það var barasta mjög fínt ;) nema ég sem að ætlaði svo mikið að skemmta mér var orðin mjög þreytt klukkan hálf eitt og fór heim. En ég átti nú samt flottasta múvið ;) þegar ég var að fara og var komin hálfa leið útí bíl uppgötvaði ég að ég hélt á einhverjum poka (fullum af bjór) sem að ég átti ekkert í :) híhíhí..... Toppurinn á mér er HRIKALEGUR! Ég ákvað að klippa hann aðeins áður en að ég færi í frænkupartýið með líka þessum hræðilegu afleiðingum.