Spenna þetta aðeins upp :)


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Með kúgun píndi Bjarni mig til að klippa sig í gær! Hann var ekkert búinn að raka sig í þá nokkra dagana og ætlaði ekkert að raka sig fyrr en að hann yrði klipptur :) Það var nú reyndar ekki vanþörf á klippingu fyrir kallinn, hann var orðinn ansi hármikill höfðinu á! Pabbi fékk líka klippingu enda kominn tími til. Ég skil ekki hvernig þeir sætta sig við þetta :)

Ég datt sko alveg í fílinginn í dag þegar að ég var hérna bak við hús með börnunum mínum. Það er svo margt sem að okkur langar að gera og þarf að gera í garðinum okkar. Hugmyndirnar flugu um garðinn minn! Það er svo aftur á móti spurning hvað "sambýlingum" okkar finnst um mínar/okkar (nei smá grín, ég ræð ekki öllu :) hugmyndir.

Svo er alveg orðið tímabært að færa smá spennu í þessa síðu, setja inn myndir og fínerí. Það kemur við tækifæri!