Þannig er nú það! En við vorum upp í bústað um helgina. Ég og mínir, Sveina og hennar og Jens Óli og hans :) svo kom Hallur á Laugardagskvöldið. Agnes var fyrir Sveins og hans hönd :) Það var svaka fjör hjá okkur, spilað og borðað og tölvast og leikið sér úti í rigningunni og farið í kofann og hlegið og margt og mikið og fleira.
Núna mætti svo veðrið lagast aðeins rigningin er ágæt en þetta er komið gott þar sem að það er júní og ekki langt í að júlí skelli á!
Lillinn minn ætlar að vera alveg jafn mikill mömmustrákur og systir sín :) Gaman að því! En við erum 99,9% viss um að hann er að segja MAMMA þegar að hann segir "mamma" :) Þeir sem að eiga börn (sem að eru farin að tala) skilja væntanlega hvað ég á við. Því mama er hljóð sem að þau segja en eru ekkert að meina mamma. En hann segir nú orðið "mamma" og horfir á mig, vil koma til mín eða annað :) Hann babblar samt "mama" og "gaga" daginn út og inn :) Kíkið endilega á gulin mín Bergrún Dögg og Sæþór Elí Ég var að gera síðurnar fínar og sætar :) Verið ófeimin við að byðja um aðgang! Sjúbbídú!
Það er eitthvað við sumarið....... ég bara nenni helst ekki í tölvuna og á bloggflakki mínu (þegar að ég nenni í tölvuna) hef ég komist að þeirri niðurstöðu að það eru fleiri sem að nenna því ekki. Það er sem sagt ekki mikið um blogg yfirleitt! Svo er það eitthvað svo týpíst að maður er alveg tómur þegar að maður sest niður og ætlar að skrifa hér inná en svo er ég kannski að gera eitthvað annað og kemst ekki í tölvuna þá er hugurinn við skrif (ef þið skiljið hvað ég á við - annars bara óheppin) :) En lífið er furðulegt engu að síður! Hvað getur maður annað sagt en það?...
Ég er svo mikil gella á nýja bílnum að það er alltaf verið að blikka mig................ reyndar af því að ég er ljóslaus ;) Það er frekar óþægilegt að það sé ekki sjálfvirkur dagljósabúnaður á bílnum eins og á gömlu elskunni minni :) En maður verður víst bara að venjast því - það hlýtur að koma! Hins vegar er búnaður á bílnum sem að kveikir sjálfkrafa á ljósunum þegar að það byrjar að rökkva en þar sem að landið okkar góða er eitt af fáum sem að það er skylda að vera með ljós alltaf þá er það ekki nógu gott. Bíllinn er alveg magnaður engu að síður :)
Bjarni hefur séð út að við gætum keypt þennan bíl vegna þess að það eru græjur í honum sem hægt er að setja 6 diska í einu í. Þar er kominn sparnaður upp á nokkra þúsundkalla............ já vegna þess að þá rispast ekki eins margir geisladiskar þegar ég er að skipta um disk og legg þá einhverstaðar frá mér :/ Svo megiði endilega láta vita af ykkur ef að þið eruð að fylgjast með. Það væri gaman að fá að vita hverjir eru að lesa þessa vitleysu (ef einhverjir eru) :) ég er reyndar ekki sú duglegasta að kommenta hjá öðrum :/ svo ég hef ekkert með svona heimtifrekju að gera :)
Við mamma, Bergrún Dögg og Sæþór Elí skelltum okkur upp í bústað á mánudaginn var :) Það var alveg svakalega fínt hjá okkur. Veðrið var alveg ágætt bara! Gerðum tilraun til þess að fara í sund á Selfossi en þá var lokað vegna viðgerða 31. maí og 1. júní svo við fórum aftur í góðri von 2. júní en þá var ekki hægt að fara í innilaugina og það voru bara útiklefar í boði (og það kostaði ekkert ofan í). Þar sem að það var fínsta veður ákváðum við að ég færi ofan í með Bergrúnu Dögg og mamma og Sæþór Elí horfðu á á bakkanum. Þið voruð óheppin að vera ekki að fljúga þann dag, útiklefarnir voru sko úti! Það er að segja það var bara þak á helmingnum af klefanum svo að flugfarendur duttu aldeilis í lukkupottinn :) Bjarni kom svo að ná í okkur í gær á nýja bílnum okkar sem að er loksins kominn til landsins :) FORD EXPLORER heitir hann! Aðal kagginn í bænum. Í dag fórum við svo í skírnina hjá litlu prinsessunni henni Bryndísi Evu :) fallegt nafn sem að litla daman fékk enda er hún gullfalleg stúlka :)