Ég er svo mikil gella á nýja bílnum að það er alltaf verið að blikka mig................ reyndar af því að ég er ljóslaus ;) Það er frekar óþægilegt að það sé ekki sjálfvirkur dagljósabúnaður á bílnum eins og á gömlu elskunni minni :) En maður verður víst bara að venjast því - það hlýtur að koma! Hins vegar er búnaður á bílnum sem að kveikir sjálfkrafa á ljósunum þegar að það byrjar að rökkva en þar sem að landið okkar góða er eitt af fáum sem að það er skylda að vera með ljós alltaf þá er það ekki nógu gott. Bíllinn er alveg magnaður engu að síður :)
Bjarni hefur séð út að við gætum keypt þennan bíl vegna þess að það eru græjur í honum sem hægt er að setja 6 diska í einu í. Þar er kominn sparnaður upp á nokkra þúsundkalla............ já vegna þess að þá rispast ekki eins margir geisladiskar þegar ég er að skipta um disk og legg þá einhverstaðar frá mér :/ Svo megiði endilega láta vita af ykkur ef að þið eruð að fylgjast með. Það væri gaman að fá að vita hverjir eru að lesa þessa vitleysu (ef einhverjir eru) :) ég er reyndar ekki sú duglegasta að kommenta hjá öðrum :/ svo ég hef ekkert með svona heimtifrekju að gera :)