Kagginn farinn af stað!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Við mamma, Bergrún Dögg og Sæþór Elí skelltum okkur upp í bústað á mánudaginn var :) Það var alveg svakalega fínt hjá okkur. Veðrið var alveg ágætt bara! Gerðum tilraun til þess að fara í sund á Selfossi en þá var lokað vegna viðgerða 31. maí og 1. júní svo við fórum aftur í góðri von 2. júní en þá var ekki hægt að fara í innilaugina og það voru bara útiklefar í boði (og það kostaði ekkert ofan í). Þar sem að það var fínsta veður ákváðum við að ég færi ofan í með Bergrúnu Dögg og mamma og Sæþór Elí horfðu á á bakkanum. Þið voruð óheppin að vera ekki að fljúga þann dag, útiklefarnir voru sko úti! Það er að segja það var bara þak á helmingnum af klefanum svo að flugfarendur duttu aldeilis í lukkupottinn :)

Bjarni kom svo að ná í okkur í gær á nýja bílnum okkar sem að er loksins kominn til landsins :) FORD EXPLORER heitir hann! Aðal kagginn í bænum.

Í dag fórum við svo í skírnina hjá litlu prinsessunni henni Bryndísi Evu :) fallegt nafn sem að litla daman fékk enda er hún gullfalleg stúlka :)