Sumar, sumar, sumar og sól.....
Fínt að vera í sumarfríi - enda erum við búin að bralla ýmislegt. Þó að það hafi ekkert verið á planinu! Sumarbústaðurinn er alltaf bestur og þar sem að ég er með markmið sem að hljóðar upp á að skrifa á hverja síðu í gestabókinni verð ég að vera dugleg að fara. (Sem að ég er) Við skelltum okkur á landsmót skáta... eða í þrjár nætur, í tjaldvagninum - gekk bara fínt :)

Svo fór ég barasta á djammið huhumm..... eftir giftingarpartýboðveisluna hjá Sveinu og Óla. Sendi kallinn heim með börnnin okkar yndislegu og fór sjálf út - langt síðan síðast! En það var alveg ágætt bara......!

Skátinn minn fór aftur á landsmótið og ég fór með börnin mín, m&p, Sveinu, Ólu Sól og SæbbaG upp í bústað að passa upp á gestabókarkvitt.

MÚHA........ Og þá vitið þið allt um það..... gef ekki upp hvað við erum búin að gera það oft síðan síðast..........

+ Best að hætta að vera svona stílhrein alltaf með sama litinn



Hver er það sem að missir fjarstýringuna af sjónvarpinu ofan í fat fullt af vatni sem hún var búin að vera í fótabaði í. Jú það er sama manneskjan og missti einu sinni nýja heimilissímann ofan í baðið þegar hún var að þvo einhverjum (man ekki hverjum) um hárið.

Auðvitað ég hver annar!

En það má fylgja sögunni að bæði komst þetta heilt frá ósköpunum :)








Gullin mín


Góðir bloggarar



Anna Björk
Anna Kristín
Bebba
Birta Rós
Dagga
Eva Rut
Gunnrún
Halla Karen
Hulda
Katrín
Kristín Erla
Sibba
Sveina

Gamalt og gott