Hver er það sem að missir fjarstýringuna af sjónvarpinu ofan í fat fullt af vatni sem hún var búin að vera í fótabaði í. Jú það er sama manneskjan og missti einu sinni nýja heimilissímann ofan í baðið þegar hún var að þvo einhverjum (man ekki hverjum) um hárið. Auðvitað ég hver annar! En það má fylgja sögunni að bæði komst þetta heilt frá ósköpunum :)