Sumar, sumar, sumar og sól..... Fínt að vera í sumarfríi - enda erum við búin að bralla ýmislegt. Þó að það hafi ekkert verið á planinu! Sumarbústaðurinn er alltaf bestur og þar sem að ég er með markmið sem að hljóðar upp á að skrifa á hverja síðu í gestabókinni verð ég að vera dugleg að fara. (Sem að ég er) Við skelltum okkur á landsmót skáta... eða í þrjár nætur, í tjaldvagninum - gekk bara fínt :) Svo fór ég barasta á djammið huhumm..... eftir giftingarpartýboðveisluna hjá Sveinu og Óla. Sendi kallinn heim með börnnin okkar yndislegu og fór sjálf út - langt síðan síðast! En það var alveg ágætt bara......! Skátinn minn fór aftur á landsmótið og ég fór með börnin mín, m&p, Sveinu, Ólu Sól og SæbbaG upp í bústað að passa upp á gestabókarkvitt. MÚHA........ Og þá vitið þið allt um það..... gef ekki upp hvað við erum búin að gera það oft síðan síðast..........
+ Best að hætta að vera svona stílhrein alltaf með sama litinn