Lillan mín er byrjuð á leikskóla. Ég er búin að vera með hana í aðlögun frá því á mánudaginn og í dag skildi ég hana í fyrsta skiptið eftir. Hún ætlaði varla að leyfa mér að fara litla músin mín, fór út að leika og leyfði mér að fara þá.... svo þegar ég kom að ná í hana sat hún í fanginu á einni konunni alveg með ekka, þá hafði hún orðið voða lítil og farið að gráta þegar farið var inn :) Æi litla skottan mín ég var hálf miður mín sjálf að koma og hún grátandi..... þetta tekur sko alveg á.

Mér finnst líka voða skrítið að hún muni vera þarna á daginn en ekki hjá mér (hún verður frá eitt til fimm) En ætli það venjist ekki :)




Ég fékk síma í afmælisgjöf. Flottan síma sem að virkar fínt. Það voru líka þessar fínu leiðbeiningar á honum (nánar til tekið á batteríinu), ég læt mynd fylgja - er meira að segja búin að setja rauðan hring utan um það sem að ég vil benda ykkur á! Eða kannski sem að símaframleiðandinn vil benda mér á?



Maður verður svona dálítið út úr heiminum við og við. Um daginn var ég að gefa snúllunum mínum morgunmat og Bergrún Dögg byður mig um að gefa sér vatn, sem að ég auðvitað geri. Læt vatn í glas, fer með að borðinu og rétti Sæþóri Elí vatnið! Hann tekur glasið um leið og hellir því yfir sig :) (Hann drekkur að sjálfsögðu úr stútkönnu en hún úr venjulegu glasi)

Í dag vorum við svo í heimsókn í húsi nokkru :) vorum einmitt að fara heim. Þá tek ég peysuna hennar Bergrúnar (Peysu sem er bleikari en bleikt:) og ætla að klæða hana í peysuna en ég tók Sæþór og byrjaði að klæða hann í hana! Alveg magnað :)

Það hefur einmitt komið fyrir líka að ég láti snuðið hans Sæþórs Elís upp í Bergrúnu Dögg :) Svona vil þetta bara verða stundum!



Ég komst að því í dag að ruslakallarnir eru að lesa bloggið mitt! Því að ruslabíllinn kom í dag að ná í ruslið og það er ekki liðin vika síðan síðast... venjulega er komið á 10 daga fresti eða eitthvað álíka. Þeir hafa ákveðið að koma aukarúnt hérna í kverfið til þess að athuga með ruslið hjá mér...... hvort þeir finndu ekki eitthvað bitastætt þar! :)



Ætli það sé ekki kominn tími til þess að fara að tölvast aðeins! Þá er bara að gíra sig upp. Talvan komin á nýjan stað og svona, keyptum okkur þennan fína tölvuskáp/hillu og komum fyrir hérna í miðju hússins, holinu. Það er kominn tími á að gera herbergi fyrir prinsinn og er verkefni næstu daga að fara í gegnum dótið sem að hefur safnast saman inn í "fyrrverandi" tölvuherberginu og koma því einhverstaðar fyrir. Wúbbí.... það verður gaman!!

Það fór illa fyrir símanum mínum. Hann fór ÓVART í ruslið! Og að sjálfsögðu mættu ruslakarlarnir strax á svæðið og tæmdu tunnuna áður en það óhapp uppgötvaðist....... GREIT!








Gullin mín


Góðir bloggarar



Anna Björk
Anna Kristín
Bebba
Birta Rós
Dagga
Eva Rut
Gunnrún
Halla Karen
Hulda
Katrín
Kristín Erla
Sibba
Sveina

Gamalt og gott