Ætli það sé ekki kominn tími til þess að fara að tölvast aðeins! Þá er bara að gíra sig upp. Talvan komin á nýjan stað og svona, keyptum okkur þennan fína tölvuskáp/hillu og komum fyrir hérna í miðju hússins, holinu. Það er kominn tími á að gera herbergi fyrir prinsinn og er verkefni næstu daga að fara í gegnum dótið sem að hefur safnast saman inn í "fyrrverandi" tölvuherberginu og koma því einhverstaðar fyrir. Wúbbí.... það verður gaman!! Það fór illa fyrir símanum mínum. Hann fór ÓVART í ruslið! Og að sjálfsögðu mættu ruslakarlarnir strax á svæðið og tæmdu tunnuna áður en það óhapp uppgötvaðist....... GREIT!