Verður síðan mín ofsótt af Pólskum öfgabloggurum? Ég er að minnsta kosti að undirbúa hana undir breytingar, "felubúninginn" :) .... þetta er bara allt spurning um tíma. Þá að hafa hann til reiðu, tímann. En kveðjið í það minnsta lúkkið því að það er nýtt útlit á teikniborðinu :) Þá er kannski von um að ég tjái mig hér oftar því að ég er sjálf búin að fá leið á útlitinu, ég þarf helst alltaf að vera að breyta til!
Best að skrifa nokkur orð...... ekki að það sé eitthvað lítið um lestrarefni á netinu, nóg af virkum bloggurum sem að eru miklu duglegri en ég!
Ég hélt að ég væri sykurkleina en samt var ég klukkuð af Magnþóru svo það er best að vera með í þessum leik, sem að mér finnst mjöggg sniðugur :)
Mig dreymir mikið, nánast á hverri nóttu.
Mér finnst hvítt súkkulaði hrikalega gott.
Mér finnst ótrúlega gaman að hengja þvott út á snúru.
Ég á fullt að myndarömmum sem að ég á eftir að setja myndir í.
Ég fór með pakka í póst í dag og þurfti að skrifa á miða sem svo var límdur á pakkann, hvert innihald pakkans væri.
Og þar hafið þið það. Þá er það víst að klukka einhvern.... humm........ Hallur bróðir minn, Sævar frændi, Sveina sis (hef reyndar einhverstaðar séð hana klukkaða), svo ætla ég að halda mig innan fjölskyldunnar og klukka mömmu og Jens Óla bróður :) þó að þau séu ekki með síðu!
Við hjónaleysin erum búin að vera voða dugleg og mála herbergið hans Sæþórs Elís :) það er allt að smella. Ofninn er að þorna út í skúr, hann var tekinn og smúlaður, svo grunnaður og loks lakkaður. Það er ekki endalaust hægt að mála þessa blessuðu ofna, erum sko með pottofna í húsinu! Ég hef aldrei málað eitthvað að viti áður en mér fannst það bara voða gaman :) Svo er það svona hitt og þetta sem að er verið að ditta að hérna á heimilinu. Bjarni er til dæmis búinn að bera á alla gluggana að utan. Bara gaman að þessu öllu!