Afmælin búin :) Afmælisveislan hans Sæþórs Elís var ofsalega fín :) Mig langar að fara að komast í jólagírinn!! Gera jólakort og svona en er bara engan veginn að koma mér í það... hugmyndirnar eru ekkert að streyma inn eins og þær eiga að gera :/
En kítli og klípi ætla ég að svara, systir þú getur ekkert bara kysst mig eitthvað út í loftið svo að ég læt það kyrrt liggja :)
*Ég þoli ekki móðuna og rakann sem að myndast á gluggunum hjá mér þegar kólnar í veðri! *Ég þoli ekki að það sé tannlæknastofa í götunni minni því kúnnarnir taka öll stæðin í kring, svo ég tali nú ekki um þegar að þeir leggja fyrir innkeyrsluna mína! *Ég þoli ekki að hafa neikvætt fólk í kringum mig! *Ég þoli ekki hvað það er keyrt hratt í götunni minni. Þá er fólk oft að reyna að ná ljósunum, mér er alveg sama... EKKI KEYRA SVONA HRATT! *Ég þoli ekki hvað það er lítið lagt upp úr þjónustulund í FLESTUM búðum á Íslandi, mætti alveg senda starfsfólk í smá þjónustufræði!
Vá þetta var erfitt! :) Ég bíð aðeins með klípið, þarf að hugsa það aðeins :)
Tíminn líður! Litli prinsinn minn er að verða árs gamall eftir tvo daga :) En það er víst ekkert sem að við getum gert til þess að stöðva tímann þó að mann langi nú stundum til þess! Það sem að við getum gert er að njóta hans, tímans. Annars fengum við hjónaleysin svaðalega, ógeðslega pest um síðustu helgi. Eða reyndar set ég nú spurningarmerki við pest? því að mér finnst nú ansi skrítið að byrja að æla á sama klukkutímanum. Þvílík og önnur eins pest? ojjjj.... bara rosalegur verkur í maganum og endalaust æl. Well allavega ætla ég ALDREI að baka pizzu aftur (kannski spelt pizzu þó, það er ekki þurrger í henni) því það að æla henni var ógeðslegt! Gerið gerjaðist í maganum.... hrollur. Það minnir mig nú á þegar að við Bjarni vorum að byrja saman. Það var á milli jóla og nýárs. Bjarni hringdi í mig og spurði "Hvernig voru jólin hjá þér?" Ég svara "ömurleg" hann var nú mjög hissa á þessum orðum mínum en ég segi svo "eyddi þeim ofan í klósettskálinni" fékk sem sagt ælupest. Nánar tiltekið á jóladagsnótt... og það er hrillingur að æla hangikjöti! Borðaði það ekki næstu tvö jól á eftir en svo ákvað ég að prófa :) Það væri gaman að sjá sjálfan sig með annara augum!
Fínasta helgi að baki. Við ógifta :) parið fórum í 50 ára afmælisboð FÍF og vorum voða flott á því og gistum á hóteli um nóttina. Fínasta skemmtun og flottur matur, gaman gaman! Svo verð ég nú að deila því með ykkur að um daginn "lét ég" minn mann setja í mig þrjár strípur :) svaka flott gella. Síðan var hún Bebba mín svo elskuleg að láta lit í rótina á mér á föstudagskvöldið og hún er bara born haircoloringpersone (humm er það orð). Ég var í það minnsta mesta pæjan í hófinu með fjólubláu strípurnar mínar og fjólubláu rótina :)
fimmtudagur, október 6
Ég er að hugsa um að láta klóna mig! Eins og í mynd sem að ég sá einu sinni. Man ekki hvað hún heitir en man að aðalpersónan í henni hét Doug. Hann lét klóna sig svo að klónið gæti farið í vinnuna fyrir sig.... og svo framvegis eitthvað. En ég var að hugsa um að láta klónið sinna síðunum mínum, það er blogginu og heimasíðum barnanna minna :) það er ótrúlegt hvað tíminn líður þegar maður er að leika sér í þessu!
mánudagur, október 3
Fékk þá flugu í höfuðið að núna væri kominn tími til þess að fara í líkamsræktarstöð. Og fyrir helgi var ég alveg ákveðin í að byrja í dag! Af reynslunni hef ég samt lært að það borgar sig að byrja á að kaupa sér mánaðarkort og sjá hvernig málin þróast, svo ég fór að kanna verð...... 6300 krónur kostar mánaðarkort þar sem ég ætla"ði?" að fara! Það finnst mér heldur mikið og það dró nú heldur betur úr mér..... kannski ég geri þá bara eitthvað annað sem að kostar minna eða EKKERT(þá kostar ekkert, ekki gera ekkert).
ÚBBOSÍ!!! Þetta átti nú ekki að gerast.... þetta var ekki alveg tilbúið..... kommentakerfið í einhverju rugli en ég reyni að laga fljótt, því auðvitað vil ég láta kommenta hjá mér :) og svo þarf ég aðstoð míns heittelskaða við það!
Jæja tilbúið :) Með hjálp Bjarna míns! Eða eigilega gerði hann allt og ég skipaði bara fyrir! :)