E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Afmælin búin :) Afmælisveislan hans Sæþórs Elís var ofsalega fín :) Mig langar að fara að komast í jólagírinn!! Gera jólakort og svona en er bara engan veginn að koma mér í það... hugmyndirnar eru ekkert að streyma inn eins og þær eiga að gera :/

En kítli og klípi ætla ég að svara, systir þú getur ekkert bara kysst mig eitthvað út í loftið svo að ég læt það kyrrt liggja :)

*Ég þoli ekki móðuna og rakann sem að myndast á gluggunum hjá mér þegar kólnar í veðri!
*Ég þoli ekki að það sé tannlæknastofa í götunni minni því kúnnarnir taka öll stæðin í kring, svo ég tali nú ekki um þegar að þeir leggja fyrir innkeyrsluna mína!
*Ég þoli ekki að hafa neikvætt fólk í kringum mig!
*Ég þoli ekki hvað það er keyrt hratt í götunni minni. Þá er fólk oft að reyna að ná ljósunum, mér er alveg sama... EKKI KEYRA SVONA HRATT!
*Ég þoli ekki hvað það er lítið lagt upp úr þjónustulund í FLESTUM búðum á Íslandi, mætti alveg senda starfsfólk í smá þjónustufræði!

Vá þetta var erfitt! :) Ég bíð aðeins með klípið, þarf að hugsa það aðeins :)