Í öllum þessum flippuðu, furðulegu og vandræðalegu hugleiðingum :) þá datt mér nú í hug eitt "atvik" sem að snertir þrjár manneskjur, flippað fyrir eina þeirra (eða flippað af henni) furðulegt fyrir aðra manneskjuna og vandræðalegt fyrir mig, þá sem þriðju manneskjuna! :) Það var á afmælinu mínu, þegar ég var 14 minnir mig!

Þannig var nú málið að ég átti vinkonu sem að er sem sé sú sem "flippaði" :) nokkrum dögum fyrir afmælið mitt spyr hún mig hvað mig langi í í afmælisgjöf. Ég sem var svaka skotin í strák sagðist vilja hann í afmælisgjöf. Haha svaka fyndið djók! Jæja upp rennur afmælisdagurinn og um hádegisbil hringir þessi vinkona og segist vera að koma í heimsókn. Ég ákvað þá að drífa mig í sturtu áður en hún kæmi. Á meðan ég er í sturtunni heyri ég að hún er komin (útidyrahurðin við hliðina) Jæja ég þurrka mig og klæði mig (sem betur fer fór ég ekki fram á nærunum eða eitthvað) Þegar inn í herbergi er komið stendur ekki vinkona mín OG STRÁKURINN með henni!!!!! Mig langaði að hverfa ofan í gólfið :) Hvernig ætli svipurinn á mér hafi verið? (smá hugleiðing) Svo beinir hún höndunum út að honum, svona eins og til að sína mér hvað hún kom með og segir "Til hamingju með afmælið" Já furðulegt fyrir strákgreyið :)








Gullin mín


Góðir bloggarar



Anna Björk
Anna Kristín
Bebba
Birta Rós
Dagga
Eva Rut
Gunnrún
Halla Karen
Hulda
Katrín
Kristín Erla
Sibba
Sveina

Gamalt og gott