Jæja þá erum við formlega búin að kaupa hús og selja okkar :) Það var skrifað undir í vikunni, þá er bara að bíða eftir afhendingu :) Það er svo sem nóg sem að þarf að skipuleggja (og jafnvel framkvæma líka) fram að því svo það er best að sitja ekkert á rassinum og bíða :) Það eru TVÆR myndir í bíó sem að ég hef áhuga á að sjá. Ég hef bara aldrei vitað annað eins :) Nú er bara að velja! Valið stendur á milli Da vinci code og X-men en ætli Dvc verði ekki bíóuð hin getur beðið fram á spólu :) En annars er ég með eitt gott húsráð svona í lokin, sem að ég fann upp alveg sjálf! Ef að þið eruð að drekka úr flottu glösunum ykkar sem að mega ekki fara í uppþvottavélina og þarf að vaska upp þá er best að reka sig bara í þau þegar maður er búinn að drekka úr þeim svo að þau brotni :)Ekkert "hand"-uppvask!
mánudagur, maí 15
One way ore another... Auðveldara væri að gera nýja síðu en að byrja að "nota" þessa aftur! En þar sem að ég vil ekki missa pólska vin minn þá er best að reyna að halda þessarri við :)
Kannski er ég bara enginn bloggari!?! :) Og hef bara lifað í blekkingu. (Og kannski er þetta bara C-vítamínið að tala)
En ég þakka dyggum aðdáendum fyrir mikla tryggð :) Ég skal reyna að svíkja ykkur ekki aftur. Svo má ég líka til með að geta þess að ég á orðið 3 færslur sem að voru bara "saved as draft" en var aldrei hleypt á netið. Svo það er ekki hægt að segja að ég hafi setið algjörlega aðgerðarlaus!