E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



X X X

Jæja þá erum við formlega búin að kaupa hús og selja okkar :) Það var skrifað undir í vikunni, þá er bara að bíða eftir afhendingu :) Það er svo sem nóg sem að þarf að skipuleggja (og jafnvel framkvæma líka) fram að því svo það er best að sitja ekkert á rassinum og bíða :)

Það eru TVÆR myndir í bíó sem að ég hef áhuga á að sjá. Ég hef bara aldrei vitað annað eins :) Nú er bara að velja! Valið stendur á milli Da vinci code og X-men en ætli Dvc verði ekki bíóuð hin getur beðið fram á spólu :)

En annars er ég með eitt gott húsráð svona í lokin, sem að ég fann upp alveg sjálf! Ef að þið eruð að drekka úr flottu glösunum ykkar sem að mega ekki fara í uppþvottavélina og þarf að vaska upp þá er best að reka sig bara í þau þegar maður er búinn að drekka úr þeim svo að þau brotni :) Ekkert "hand"-uppvask!