föstudagur, júní 29
Í gær gerði ég mína ALLRA síðustu tilraun til að borða á Duus. Ég er búin að gefa staðnum nokkuð marga sénsa (veit ekki af hverju) en maturinn sem að ég fæ þarna er alltaf ógeðslegur. Að frá töldu einu skipti sem að ég fékk ágætt kjúklingasallat sem var að vísu með salthnetum í sem að var ekki alveg að gera sig. En í það skiptið fórum við hjónin saman og þegar þjóninn kom með sallatið kom hún bara með eitt sallat, gleymdi sem sagt að gera tvö og að sjálfsögðu rétti hún Bjarna diskinn (en hann lét mig hafa hann og beið eftir hinu, hann er svo mikill herramaður) :) En hann mátti þá horfa á mig borða dágóða stund. Svo í gær fórum við aftur saman tvö (alltaf úti að borða) þá kom maturinn minn ískaldur og ég kvartaði að sjálfsögðu en maturinn sem að kom til baka var ógeðslega vondur. Ég nenni ekki að þylja upp öll skiptin sem að ég hef farið þangað en það hefur ALLTAF verið eitthvað vesen. Þannig að sorry Duus ég kem ekki aftur að borða hjá þér! :)
Planið hjá okkur fer óðum að taka á sig betri mynd. Það er búið að vera svaka fjör hér á bæ, búið að grafa allt upp og skipta um jarðveg. Næst á dagskrá eru hellulagningar. Svo erum við alveg að verða búin að mála húsið eða aðallega Bjarni, ég hjálpa eins og ég get :)
Síðast en ekki síst þá er ég búin að eignast saumavél svo að saumakonan á móti má fara að vara sig :)
Hafið það gott um helgina í góða veðrinu!
fimmtudagur, júní 21
Í fyrrakvöld sátum við fjölskyldan saman að borða kvöldmatinn þegar að ég rek augun út um gluggann og sé blöðru fasta efst upp í tré hjá fólkinu á móti. Einmitt Nemo blöðru eins og Sæþór Elí hafði fengið á 17. júní svo að ég stekk upp í herbergið hans (þar sem að blaðran átti að vera) en þar er engin blaðra. Við höfðum ekki verið heima allan daginn en ég hafði skilið gluggana eftir opna en bara smá rifu svo að blaðran þurfti að vera ansi lipur til að smokra sér út um gluggann :) Sæþór Elí bað pabba sinn vinsamlegast um að ná í blöðruna með stiga ;) En blöðru ræfillinn fauk bara út í veður og vind!
Þegar að við áttum heima á skólaveginum stóð okkur ekki á sama vegna ofsa aksturs sem að átti sér stað fyrir utan hjá okkur. Fólk keyrði mjög hratt þarna oftar en ekki til að ná grænu ljósi. Mér var nú nóg boðið þegar að Risa vörubíll MEÐ tengivagn kom á fartinu til að ná ljósinu. En Bjarni sendi bréf til bæjaryfirvalda (oftar en einu sinni held ég) og spurði þá hvað þeir ætluðu að gera í þessu, aldrei kom svar. Jæja við erum löngu flutt ef það hefur farið fram hjá einhverjum :) Í gær skella svo einhverjir bæjarstarfsmenn hraðahindrun fyrir utan hjá okkur. Hún er þannig staðsett að hver sá sem að yfir hana fer er nánast inní eldhúsi hjá okkur. Fólk GLÁPIR inn! Þeir eru eitthvað seinir þarna hjá bænum og hafa sennilega verið að svara bréfinu okkar núna en eitthvað misskilið staðsettninguna :) Eða ég fæ það allavega út!
Ég hvet ykkur svo til þess að keyra varlega á Skólaveginum og að sjálfsögðu alls staðar. Það kemur alltaf grænt ljós aftur, nokkrum mínútum eða jafnvel sekúndum síðar :)
fimmtudagur, júní 14
Já loksins er ég að verða "ég sjálf" eins og Birgitta Haukdal söng einhvern tíman :)
Lillinn minn er veikur svo að við vorum bara heima í rólegheitunum í dag og lillan mín var heima með okkur :)
Allt að fara að gerast hérna fyrir utan hús. Hlakka til þegar það er búið! Mig langar svo að fara í útilegu og upp í sumarbústað og að sjálfsögðu að snúllast á pallinum okkar og fara í pottinn og fleira og fleira...
sunnudagur, júní 10
Gaman að rúnta um á malbikuðu götunum í Njarðvík, verst er þó að það eru engin hús við þær :/
Við skelltum okkur í sund á laugardaginn og var það mín fyrsta ferð síðan Vatnaveröld opnaði í Keflavíkurlaug og finnst mér þetta frábært svæði :) Gaman að vera þarna með börnin mín sem að skemmtu sér konunglega! En mér varð hugsað til þess tíma þegar ég var í FS. Þá passði enginn íþróttatími sem að hentaði mér við stundatöfluna mína svo að ég átti að fara sjálf í laugina og synda 1000 metra á viku. Það gerði ég líka samviskusamlega, synnti allar ferðirnar! Svo þegar ég fékk einkunnirnar mínar stóð einhver skrítinn bókstafur við þennan áfanga en einhverra hluta vegna pældi ég ekkert í því, komst svo að því seinna að þetta þýddi að ég hafi ekki lokið áfanganum. En þá var því miður of seint að gera einhverja athugasemd við þetta svo að ég fékk aldrei þessar einingar. En ég synnti þessar ferðir samt :)
Passið ykkur svo á mér, ég urra svolítið mikið þessa dagana!
föstudagur, júní 8
Inni sit ég í tölvunni og maðurinn minn úti að mála! Haldið þið að það sé nú :)
Í gær fór ég í uppáhalds búðina mína (sem að er samt að fara að hætta að vera uppáhalds búðin mín) eða Samkaup og ætlaði í sakleysi mínu að fara í hraðbankann og ná mér í monninga. En nei á undan mér voru þrír útlendingar og VÁ hvað þeir voru lengi! Ég stóð þarna eins og þvara í 10 mín eða meira. Hvað er málið með að fara hópferðir allan fjandann! Það var alveg farið að sjóða á mér. Svo toppaði það ferðina að ég lenti á kassa hjá strák greyi sem að er örugglega nýbyrjaður að vinna þarna og kunni voða lítið á kassann! En ég beit í tunguna, FAST.
Hafið það gott um helgina og haldið ykkur frá gluggunum hjá okkur, það virðist vera voða vinsælt núna að liggja á þeim :)
mánudagur, júní 4
Skemmtileg helgi að baki hjá okkur fjölskyldunni :) Fórum í sveitaferð á Grjóteyri með leikskólanum á laugardaginn og renndum svo upp í bústað í gær og kíktum á skarann sem að var það :)
Núna taka við klippingar hjá frúnni. Hún hefur ekki verið að standa sig að undanförnu og er biðröðin orðin ansi löng! Hún ætlar þó að byrja á bóndanum sínum ;) hann á það nú skilið!
Potturinn er kominn í gagnið. Mikið verður það næs að vera hérna bak við hús í sumar, við munum sko nota góðviðris dagana vel hversu margir sem þeir verða. Að vísu ætlum við nú líka að mála húsið okkar svo að við neyðumst til að deila dögunum í það líka :)
Allir að rétta upp hendi sem að geta lesið bloggið mitt! ;)