Í fyrrakvöld sátum við fjölskyldan saman að borða kvöldmatinn þegar að ég rek augun út um gluggann og sé blöðru fasta efst upp í tré hjá fólkinu á móti. Einmitt Nemo blöðru eins og Sæþór Elí hafði fengið á 17. júní svo að ég stekk upp í herbergið hans (þar sem að blaðran átti að vera) en þar er engin blaðra. Við höfðum ekki verið heima allan daginn en ég hafði skilið gluggana eftir opna en bara smá rifu svo að blaðran þurfti að vera ansi lipur til að smokra sér út um gluggann :) Sæþór Elí bað pabba sinn vinsamlegast um að ná í blöðruna með stiga ;) En blöðru ræfillinn fauk bara út í veður og vind!
Þegar að við áttum heima á skólaveginum stóð okkur ekki á sama vegna ofsa aksturs sem að átti sér stað fyrir utan hjá okkur. Fólk keyrði mjög hratt þarna oftar en ekki til að ná grænu ljósi. Mér var nú nóg boðið þegar að Risa vörubíll MEÐ tengivagn kom á fartinu til að ná ljósinu. En Bjarni sendi bréf til bæjaryfirvalda (oftar en einu sinni held ég) og spurði þá hvað þeir ætluðu að gera í þessu, aldrei kom svar. Jæja við erum löngu flutt ef það hefur farið fram hjá einhverjum :) Í gær skella svo einhverjir bæjarstarfsmenn hraðahindrun fyrir utan hjá okkur. Hún er þannig staðsett að hver sá sem að yfir hana fer er nánast inní eldhúsi hjá okkur. Fólk GLÁPIR inn! Þeir eru eitthvað seinir þarna hjá bænum og hafa sennilega verið að svara bréfinu okkar núna en eitthvað misskilið staðsettninguna :) Eða ég fæ það allavega út!
Ég hvet ykkur svo til þess að keyra varlega á Skólaveginum og að sjálfsögðu alls staðar. Það kemur alltaf grænt ljós aftur, nokkrum mínútum eða jafnvel sekúndum síðar :)