Inni sit ég í tölvunni og maðurinn minn úti að mála! Haldið þið að það sé nú :)
Í gær fór ég í uppáhalds búðina mína (sem að er samt að fara að hætta að vera uppáhalds búðin mín) eða Samkaup og ætlaði í sakleysi mínu að fara í hraðbankann og ná mér í monninga. En nei á undan mér voru þrír útlendingar og VÁ hvað þeir voru lengi! Ég stóð þarna eins og þvara í 10 mín eða meira. Hvað er málið með að fara hópferðir allan fjandann! Það var alveg farið að sjóða á mér. Svo toppaði það ferðina að ég lenti á kassa hjá strák greyi sem að er örugglega nýbyrjaður að vinna þarna og kunni voða lítið á kassann! En ég beit í tunguna, FAST.
Hafið það gott um helgina og haldið ykkur frá gluggunum hjá okkur, það virðist vera voða vinsælt núna að liggja á þeim :)