Þá er tölvusumarfríinu mínu lokið ;) Ykkur til mikillar gleði!
Við erum búin að hafa það alveg svakalega gott. Fórum í svaka reisu um Íslandið okkar með tjaldvagn, vorum búin með utanlandspakkann í mars ;) ekki að það sé einhver skylda að fara út en þá er það nú samt alltaf gaman.
Ferðalagið okkar byrjaði á ættarmóti sem haldið var rétt hjá Borgarnesi. Það var svo sem ágætt en ég fer ekki aftur á ættarmót með börnin mín! Það var ekki svefnfriður á nóttunni þó að gríslingarnir mínir hafi sem betur fer sofið allt af sér þá svaf ég MJÖG lítið, ekki gaman að byrja tveggja vikna ferðalag þannig! Þaðan fórum við svo á Arnarstapa sem að er á Snæfellsnesinu, vorum þar í tvær nætur ásamt erkióvinum mínum kríunni :) Næsti viðkomustaður var Hvammstangi þar var alveg rosalega fínt tjaldsvæði má til með að taka það fram því að þau voru mjög misjöfn um landið þá aðallega salernisaðstæðan en ég þurfti að hafa mikil afnot af henni ;) Svo var farið á Akureyri þar sem að við eyddum þremur dögum og gíruðum okkur aðeins niður úr útilegu stemmningunni og fórum út að borða á kvöldin og höfðum það fínt ;)
Þá var lagt í Ásbyrgi einn af fallegustu stöðunum á landinu okkar. Þaðan tókum við rúnt á Ribben maður varð nú að kíkja þangað þar sem að við vorum komin svona langt.

Svo var það nótt á Mývatni og VÁÁÁ.... við tókum rúnt hringinn í kringum vatnið og það er ótrúlegt að sjá mýið, það var eins og litlir skýstrókar það er eina lýsingin sem að ég á yfir það. Svo var það nótt í Atlavík með skemmtiatriðum frá ósáttum tjaldgestum sem að notuðu börnin sín til hefniaðgerða seint um kvöld gegn húsbílaeigendum sem að fóru í taugarnar á þeim. Ótrúlegt hvað fólk getur verið klikkað! Svo var það Skaftafell eina nótt en þegar þar var komið við sögu var frúin orðin ansi lúin og til í að fara heim :) Svo að við fórum upp í bústað og enduðum ferðina þar með veikindum því B-in mín urðu fárveik!
Mjög gaman að fara svona um landið og sjá hvað maður hefur það fínt þar sem að maður býr! Þó að fólk kjósi sér að vísu sjálft að búa þar sem það er og við þær aðstæður sem það er, eða eitthvað svoleiðis! En staðurinn sem að allir fjölskyldumeðlimirnir skemmtu sér jafn mikið að koma á var tvímælalaust Jökulsárlón. Rosalega fallegt þar og það skemmdi ekki fyrir að það voru selir að synda þar :)

Lengri færsla hefur ekki verið skrifuð á þetta blogg! Þið hljótið nú líka að sjá muninn á henni og gömlu færslunum því að hún er skrifuð á glænýju tölvuna okkar! ;)
Þar sem að ég hef verið klukkuð tvisvar og ég er í bloggham þá ætla ég líka að skrifa átta staðreyndir um mig ;) en ég ætla ekki að klukka neinn því að allir sem
að ég þekki hafa þegar verið klukkaðir.
#Ég á LANG BESTU foreldra í heimi. Sorry fyrir ykkur hin, nema þá systkyni mín fjögur þau eru svo heppin að deila þeim með mér.
#Ég er Grey's anatomy sjúklingur!
#Ég er meyja.
#Ég nota skó númer 39 en stundum 38.
#Ég byrja alltaf að lesa blöðin aftast. Nema Víkurfréttir þegar Bebba fór að skrifa í þær því að greinin hennar er svo framarlega :)
#Planið mitt eða innkeyrslan mín er orðin lang flottust í bænum og þó víðar væri leitað.
#Ég er ótrúlega hrædd við fugla eða kannski meira svona illa við þá! Get ekki hugsað mér að fá þá nálægt mér.
#Ég er orðin alveg þokkalega hvít eftir alla sólina í sumar, hætt að vera glær :)
Svona í lokin ætla ég að setja inn mynd af því sem að blasti við okkur í "stóru" forstofunni okkar þegar að við komum heim :)