Allt gott að frétta af þessum bloggara :) Voða margir í kringum mig eru að sigla á ný og önnur mið, svo að það er nóg að fylgjast með ;) Vonandi finna sig bara allir þar og í því sem að þeir eru að fara að gera. Sjálf bíð ég bara spennt fram á næsta þriðjudag en þá á ég loksins tíma í litun og klippingu því að klipparinn minn er búin að vera í fríi. Ég hef nú örugglega sagt þetta áður en þetta skiptið vinnur hitt þá ;) Ef að fólk mundi sjá hausinn á mér núna mundi það ekki trúa því að ég væri lærður klippari (jájá ég veit ég á smá eftir). Þannig að eftir þriðjudaginn get ég farið stollt út úr húsi :)
Við keyptum ofninn, helluborðið og uppþvottavélina í eldhúsið okkar hjá Rönning (eða hvernig sem að það er skrifað) fyrir rúmu ári síðan. Ofninn vildi ég hafa með sjálfþrifakerfi eða hvað maður kallar það, sem og mér var sagt að hann væri með. Eina kerfið sem að við fundum á honum sem átti að þrífa var ekki alveg að virka að okkar mati og ég þurkaði alltaf innan úr honum sjálf á eftir. Um daginn fór Bjarni svo í búðina og spurði út í þetta og þá kom í ljós að það væri ekkert svona kerfi á honum, ekkert almennilegt í það minnsta þetta sem er til staðar er eitthvað létt kerfi. Maður spyr sig "Hver er minn réttur í þessu?" Sem sagt fyrir þessu rúma ári síðan laug afgreiðslumaðurinn því að okkur að ofninn væri með þetta kerfi og við sitjum uppi með hann. OG þurfum að þrífa hann sjálf þegar að hefðum getað farið eitthvað annað og keypt okkur ofn með þessum eiginleikum!
Loksins fundum við hurð á sturtuna okkar. Sturtan er líka í smá lagfæringu en verður væntalega tilbúin í næstu viku. Mikið verður það fínt ;) það er ekki alveg að gera sig fyrir konu eins og mig að skrönglast í sturtu í baðinu mínu (þeir sem að hafa séð baðið skilja hvað ég á við). Undanfarið hefði ég alveg viljað eiga heima í sturtunni sökum hita, þannig að ég fagna kólnandi veðri þetta haustið :)
Knús á ykkur öll og hafið það gott um helgina! Góð helgi framundan ;)