E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Ég var ennþá í níunda bekk þegar ég byrjaði að klippa bróðir minn og hann greyið fékk engu um það ráðið ;) ég ætlaði að verða klippari og var byrjuð að æfa mig! Eitt skiptið klippti ég aðeins í eyrað á honum og var sko alveg í rusli yfir því, það var nú samt ekkert mikið. En amma var heima þegar það gerðist og hún sagði við mig "Þetta er allt í lagi! Ég klippti alltaf yngri bræður mína og einu sinni klippti ég í eyrað á einum þeirra (man ekki hver það var) og þá hætti ég bara að klippa þá". Mjög hughreystandi fyrir framtíðar klipparann mig :) Amma er yndisleg!


Í fyrsta sinn á ævinni er ég með neglur! Er meira að segja búin að hafa þær í alveg tvo mánuði eða meira. Ég byrjaði víst að naga á mér neglurnar mjög snemma og hef svo alveg haldið því við fram eftir aldri. Ef svo heppilega hefur viljað til að ég hafi getað látið þær í friði og safnað smá hafa þær bara rifnað og klofnað. Núna hins vegar eru þær bara svaka sterkar og mig langar alls ekki að naga þær og veit ég ekkert hvað veldur því. Er bara voða glöð og mikil gella með fínar neglur :) En börnin mín eru ekki eins ánægð með þetta, fyrst var Sæþór Elí alltaf að segja mér að ég þyrfti nú að klippa á mér neglurnar ;) og núna eru þau farin að kvarta yfir að ég klóri þau ;)

Það er svolítið talað um litla barnið í bumbunni á þessu heimili. Eins og eðlilegt hlýtur að teljast :) Stundum er ég að segja krúttunum mínum að barnið sé að sparka í bumbunni en þau hafa samt ekkert fundið það sparka. Um daginn sagði Sæþór Elí svo við mig "Mamma ég sparka sko ekki í þig" ;) Algjör snúður!

Best að vera með smá verðlauaafhendingu hérna á síðunni fyrir mestu kommentin ;) Bebba er í fyrsta sæti, by far og er hún greyið stundum búin að heyra áður það sem að ég er að skrifa hérna ;) Í öðru sæti er hún Birta en hún er dugleg að skilja eftir sig spor ;) Mamma er svo í því þriðja þó að hún sé ekki mikið að skilja eftir sig komment þá veit ég að hún er minn dyggasti lesandi :) Til hamingju stelpur!!! ;)

Bissí vika fram undan hjá mér. Fullt um að vera ;) gaman að því!