mánudagur, september 24
Sennilega er bara ekki hægt að gera óléttu konunni mér til hæfis þessa dagana! Ég hafði orð á því um daginn hvað mig hlakkaði mikið til að það færi að kólna í veðri því að ég var alltaf að kafna úr hita. Jæja svo kólnar í veðri og hvað þá? Núna á ég engin hlý föt sem að ég passa í til að vera í þessum kulda, OF KALLT. Úlpan mín góða nær því miður ekki utan um mig núna og ég ætla ekki að kaupa mér úlpu til að nota í svona stuttan tíma. Þannig að næst á dagskrá er að hætta að kvarta undan hita og byrja að kvarta undan kulda :)
Um daginn vorum við hjúin að fara í pottinn eitt kvöldið. Ég fór út aðeins á undan Bjarna. Himinninn var þvílíkt stjörnubjartur og fallegur. Ég kom mér huggulega fyrir í pottinum og byrjaði að glápa upp í loftið, ég gæti horft á stjörnurnar tímunum saman! En allt í einu tek ég eftir því að það voru einhver augu að horfa á mig....... stendur ekki köttur á brúninni á pottinum. Veit ekki hvort hann ætlaði út í til mín en ég í það minnsta gargaði úr mér lungun og hann drattaðist í burtu....
Kattakvikindin í hverfinu skitu svoleiðis á lóðina hjá okkur áður en við tókum planið í gegn. Risastór kúkakassi fyrir þá, allt í sandi. Skitan er hætt eftir að sandurinn fór og flotta planið okkar kom en samt eru þessi kvikindi alltaf eitthvað að vesenast hérna. Því miður þá bara þoli ég þá ekki. Ef að einhver ætlar að verða uppfinningarmaður þá mæli ég með fyrir viðkomandi að finna eitthvað upp til að fæla ketti í burtu af lóðum. Ég óska hér með eftir því :)
Ein flott af krúttunum mínum :)

knús, knús......
miðvikudagur, september 19
Þá erum við hjúin búin að vera gift í ár! Það er að segja á sunnudaginn síðastliðinn :) Margt gerst á þessu ári. Hrísgrjónin virkuðu líka svona vel ef það hefur farið fram hjá einhverjum :)

Við fórum á hótel um helgina eða frá laugardegi til mánudags og höfðum það hrikalega kósý. Við áttum nefnilega "gjafabréf" upp á pössun þessa helgi og nýttum það að sjálfsögðu :) Ég verð nú að taka það fram að fjölskyldan mín burstaði fjölskylduna hans Bjarna í því að standa við þessi gjafabréf :) (sorry Bjarni minn) Meira að segja í því hlutfalli að allir nema einn stóðu við sitt í minni en aðeins einn stóð við sitt í hans! :) En þetta var að sjálfsögðu gert til gamans og var alveg ferlega skemmtilegt.
Næst að pælingum barnanna minna :) Það eru alveg ótrúlegir gullmolar sem að koma út úr þessum snúllum. Til dæmis spurði Bergrún Dögg mig um daginn af hverju pabbi sinn keyrði alltaf þegar að við værum bæði í bílnum. Ég sagði henni að það væri af því að pabba hennar þætti miklu skemmtilegra að keyra en mér :) sem að hann mótmælti svo við mig seinna :) Í gær þegar við vorum að koma út af leikskólanum sér Sæþór Elí bíl fyrir utan þar sem að konan er að keyra en maðurinn situr í farþega sætinu. Þá segir hann mamma kallar eiga alltaf að keyra þegar að konurnar eru með í bílnum. Ég mótmæli því en hann stendur sko fastur á því að kallar eigi að keyra. Svo að stelpan mín er algjör kvenréttindakona en strákurinn minn með vott af karlrembu :)
Mikið þykir mér það leitt hvað búðunum hérna á svæðinu hefur hrakað svakalega. Þá sérstaklega ávaxta og grænmetis borðin. Bónus finnst mér besti kosturinn í þessum efnum en eini gallinn er hvað það er langt að keyra þangað inn eftir.
Jæja ætli ég endi þessa færslu ekki með einni óléttumynd af mér úr síðustu viku......

Hafið það gott í rigningunni :)
miðvikudagur, september 12
Allt í góðum gír hérna!
Sæþór Elí ennþá að kvarta yfir nöglunum á mér.
Fólk ennþá að glápa inn um eldhúsgluggann hjá mér þegar það fer yfir hraðahindrunina góðu.
Komin hurð á sturtuna.
Komnar rennur á húsið.
Búið að malbika 3/4 fyrir framan innkeyrsluna okkar. (Nesprýði eru greinilega snillingar! veit ekki hvenar þeir ætla að #drulla# sér að klára :)
Bergrún Dögg farin að spila á fullu á píanó bókina sína, svakalega klár stelpa sem að ég á.
Sparkandi barn í bumbu.
Við búin að búa í góða húsinu okkar í ár! Tíminn líður.
Knús í krús!