E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Sennilega er bara ekki hægt að gera óléttu konunni mér til hæfis þessa dagana! Ég hafði orð á því um daginn hvað mig hlakkaði mikið til að það færi að kólna í veðri því að ég var alltaf að kafna úr hita. Jæja svo kólnar í veðri og hvað þá? Núna á ég engin hlý föt sem að ég passa í til að vera í þessum kulda, OF KALLT. Úlpan mín góða nær því miður ekki utan um mig núna og ég ætla ekki að kaupa mér úlpu til að nota í svona stuttan tíma. Þannig að næst á dagskrá er að hætta að kvarta undan hita og byrja að kvarta undan kulda :)

Um daginn vorum við hjúin að fara í pottinn eitt kvöldið. Ég fór út aðeins á undan Bjarna. Himinninn var þvílíkt stjörnubjartur og fallegur. Ég kom mér huggulega fyrir í pottinum og byrjaði að glápa upp í loftið, ég gæti horft á stjörnurnar tímunum saman! En allt í einu tek ég eftir því að það voru einhver augu að horfa á mig....... stendur ekki köttur á brúninni á pottinum. Veit ekki hvort hann ætlaði út í til mín en ég í það minnsta gargaði úr mér lungun og hann drattaðist í burtu....

Kattakvikindin í hverfinu skitu svoleiðis á lóðina hjá okkur áður en við tókum planið í gegn. Risastór kúkakassi fyrir þá, allt í sandi. Skitan er hætt eftir að sandurinn fór og flotta planið okkar kom en samt eru þessi kvikindi alltaf eitthvað að vesenast hérna. Því miður þá bara þoli ég þá ekki. Ef að einhver ætlar að verða uppfinningarmaður þá mæli ég með fyrir viðkomandi að finna eitthvað upp til að fæla ketti í burtu af lóðum. Ég óska hér með eftir því :)

Ein flott af krúttunum mínum :)




knús, knús......