E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Þá erum við hjúin búin að vera gift í ár! Það er að segja á sunnudaginn síðastliðinn :) Margt gerst á þessu ári. Hrísgrjónin virkuðu líka svona vel ef það hefur farið fram hjá einhverjum :)

Við fórum á hótel um helgina eða frá laugardegi til mánudags og höfðum það hrikalega kósý. Við áttum nefnilega "gjafabréf" upp á pössun þessa helgi og nýttum það að sjálfsögðu :) Ég verð nú að taka það fram að fjölskyldan mín burstaði fjölskylduna hans Bjarna í því að standa við þessi gjafabréf :) (sorry Bjarni minn) Meira að segja í því hlutfalli að allir nema einn stóðu við sitt í minni en aðeins einn stóð við sitt í hans! :) En þetta var að sjálfsögðu gert til gamans og var alveg ferlega skemmtilegt.

Næst að pælingum barnanna minna :) Það eru alveg ótrúlegir gullmolar sem að koma út úr þessum snúllum. Til dæmis spurði Bergrún Dögg mig um daginn af hverju pabbi sinn keyrði alltaf þegar að við værum bæði í bílnum. Ég sagði henni að það væri af því að pabba hennar þætti miklu skemmtilegra að keyra en mér :) sem að hann mótmælti svo við mig seinna :) Í gær þegar við vorum að koma út af leikskólanum sér Sæþór Elí bíl fyrir utan þar sem að konan er að keyra en maðurinn situr í farþega sætinu. Þá segir hann mamma kallar eiga alltaf að keyra þegar að konurnar eru með í bílnum. Ég mótmæli því en hann stendur sko fastur á því að kallar eigi að keyra. Svo að stelpan mín er algjör kvenréttindakona en strákurinn minn með vott af karlrembu :)

Mikið þykir mér það leitt hvað búðunum hérna á svæðinu hefur hrakað svakalega. Þá sérstaklega ávaxta og grænmetis borðin. Bónus finnst mér besti kosturinn í þessum efnum en eini gallinn er hvað það er langt að keyra þangað inn eftir.

Jæja ætli ég endi þessa færslu ekki með einni óléttumynd af mér úr síðustu viku......




Hafið það gott í rigningunni :)