Við Sæþór Elí erum ein í kotinu núna, B-in mín eru í félagsútilegunni. Litla pæjan var sko mjög spennt að vera að fara í skátaferðalag og var sko í skátapeysunni sinni :) þau fóru í gær og koma heim á eftir. Lillinn og mamman voru bara hérna heima í rólegheitum, enda eru rólegheit ofarlega á listanum hjá mömmunni þessa dagana. En svo koma dagar inn á milli sem að einkennast af andstæðunni við rólegheit!
Við fórum að versla í gær, nammi dagur og svona :) Þegar við fórum fram hjá goskælinum var strákur með fullu kerru af gosi og var að fylla á. Þá sagði litli snillingurinn minn "uss uss uss ætlar hann að kaupa svona mikið" af gosi þá :) Bara krútt drengurinn minn!
Annars erum við fjölskyldan í góðum gír!