Ég hélt að ef að maður kaupir vöru sem að svo reynist vera gölluð þá eigi maður að fá nýja vöru í staðinn fyrir þessa gölluðu!? (Núna eru strax einhverjir hættir að lesa hugsandi "byrjar hún að kvarta eina ferðina enn") hehe..... En ég keypti nýja pollagalla á krílin mín í júlí frá sextíu og sex gráður norður :) Bandið á Sæþórs Elís galla (til að setja undir stígvélið) losnaði flótlega, en mamma saumaði það fyrir mig á (hún er sko með teyjusaum á sinni vél, ég kann ekkert á mína ennþá) ;) En jæja svo gerist það sama á gallanum hennar Bergrúnar Daggar svo að ég ákvað að ég léti nú ekki bjóða mér þetta, plús það að það er komið gat á efnið sjálft. Fór í búðina og ætlaði barasta að fá nýjar buxur en þá er það eina sem að stendur mér til boða að láta þau sauma þetta fyrir mig og eflaust tekur það einhverja daga. En þá væri barnið mitt ekki með pollagallann sinn sem að ég fjárfesti jú í til að hún gæti notað hann í rigningunni, ekki til þess að hafa hann í viðgerð hjá þeim af því hann er gallaður! Svo hefði ég líka þurft að þvo buxurnar fyrst og koma svo aftur í búðina því að þau taka ekki við skítugum flíkum!
Ég nenni ekki að hringja inn á aðalskrifstofuna hjá þeim þó að ég ætli mér að gera það. Kannski líka af því að það bíða mín (eða okkar) svo mörg svona símtöl sem að maður ætlar alltaf að hringja á morgun. Inn í stöð 2 af því að afruglarinn drepur alltaf á sér í tíma og ótíma, erum tvisvar eða þrisvar búin að fá nýjan en alltaf sama sagan svo að það hlítur að vera eitthvað annað. Tannlæknirinn minn því að tönnin sem að hann var eitthvað að grúska í síðast er alltaf að meiða mig en gerði það ekki áður en hann gerði eitthvað við hana. Smiðinn sem að ætlaði að koma til okkar eftir 6 vikur í október í fyrra og svo eftir hálftíma í apríl en hefur ekki ennþá látið sjá sig. Bæinn því að þeir eru ekki ennþá farnir að gera eitthvað í þessari hraðahindrun sem að er líkari stökkbretti (í hljóði) þegar að maður býr við hliðina á henni. Svo að eitthvað sé nefnt! Ég nenni ekki að standa í svona, vildi að svona smámunir sem að skipta engu máli en skipta samt máli mundu bara leysast af sjálfu sér :)
Helgin fór í málerí og flutninga hjá okkur. Vorum að færa SEB um herbergi og er drengurinn svakalega ánægður með flotta herbergið sitt. Svo fékk BDB smá fíneseringu á sínu herbergi líka, við keyptum svo flotta límmiða útí Florida sem að voru að fara uppá veggi núna. Það er víst alltaf hægt að finna sér eitthvað að dudda við heima hjá sér, bara spurning um að vera í rétta múdinu :) Aðal talvan er ekki í sambandi vegna flutninga svo að þið fáið ekki að sjá neinar myndir af flottheitunum!
Túrílú.....