E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Þá eru strákarnir mínir báðir búnir að eiga afmæli. Sæþór Elí á fimmtudaginn síðastliðinn og var að sjálfsögðu haldin veisla sem að átti að vera í smærri kantinum en fjölskyldan er svo stór að minni gat hún ekki verið ;) Og vá hvað barnið fékk mikið í afmælisgjöf, sumt háværara en annað :) Svo Bjarni á föstudeginum og fékk hann að sjálfsögðu flottustu afmælisgjöf sem um getur frá elskulegu eiginkonunni sinni :)
Þegar ég var að eiga Sæþór Elí sagði ég við ljósuna að pabbinn ætti nú afmæli daginn eftir en að ég ætlaði nú samt að vera svo leiðinleg og vera búin fyrir miðnætti. Þá sagði hún "ég átti afmæli í gær svo að það er bara samkomulag um að barnið komi í dag og sé á milli okkar" :) Algjört æði þessi ljósa og ég vildi að ég gæti pantað hana núna!

En úr einu í annað. Hvað finst ykkur um að jólaauglýsingar séu farnar að birtast og að jóladót sé komið upp í búðum tveimur mánuðum fyrir jól? Tveir mánuðir eru alveg 1/6 af árinu og þá eru jólin að byrja svo að þetta er eitthvað stærra hlutfall. Er ekki hægt að setja einhverjar reglur um að svona sé bannað til 15. nóvember eða eitthvað álíka? Sjálfri tekst mér að horfa framhjá þessu en ég hef meiri áhyggjur af börnunum mínum og maður mun eiga í mesta basli með að halda þessu frá þeim fram að skikkanlegum tíma. Laddi og Eiríkur Hauksson ættu í það minnsta að vera glaðir því að þeir eru að fá ósk sína uppfyllta ;) "Bara ef jólin væru aðeins lengri..." og "Ég vildi að alla daga væru jól" hehe.....

Allir í stuði á þessu heimili. Sæþór Elí er að vísu búinn að vera lasinn og er bara hérna heima að dúllast með mömmu sinni. Börnin mín bíða svo eftir meiri snjó, snjórinn sem að kom um daginn gerði mikla lukku og var nýttur alveg að fullu :) Það væri óskandi að það kæmi smá snjótíð með alvöru snjó ekki þessum sem að breytist alltaf í "slabb". Það er alveg einstakt að sjá gleðina og speninginn sem að kemur hjá þeim um leið og snókornin byrja að falla :)

Knús í krús og hafið það sem best :)