Jólin hér, jólin þar, jólin þau eru alls staðar! En svo heyrði ég líka um daginn að jólin væru í Byko!? Þá er ég í miklum vandræðum því að ekki ætla ég með litla barnið mitt inn í Byko, það er að segja ef það verður komið úr bumbunni :) Þetta er orðin lengsta meðgangan mín hingað til, samt er ég ekki komin á dag ennþá..... En við erum öll í góðum fíling og spennan magnast :)
Búið að baka sörur OG borða þær (næstum allar) rúsínukökur voru líka bakaðar um daginn og var Bergrún Dögg hrifnust af þeim, algjör sælkeri þessi snúlla :) Laufabrauðið er líka vinsælt og magnið af mandarínum sem að hefur farið hér er gígantískt hehe.....
Brjálað að gera í að skreyta og er mesti hausverkurinn að finna út hvernig sé hægt að skreyta utanhús en það er allt að leysast ;) Svo að jólafílingurinn er að hreiðra um sig á þessum bæ enda komið leyfi á það :)
Hafið það öll sem best og njótið, það gleymist allt of oft. Öll fallegu jólaljósin út um allan bæ, kveikjum líka ljósið inn í okkur :)
Risaknús