And so it is!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Tíminn líður! Litli prinsinn minn er að verða árs gamall eftir tvo daga :)

En það er víst ekkert sem að við getum gert til þess að stöðva tímann þó að mann langi nú stundum til þess! Það sem að við getum gert er að njóta hans, tímans.

Annars fengum við hjónaleysin svaðalega, ógeðslega pest um síðustu helgi. Eða reyndar set ég nú spurningarmerki við pest? því að mér finnst nú ansi skrítið að byrja að æla á sama klukkutímanum. Þvílík og önnur eins pest? ojjjj.... bara rosalegur verkur í maganum og endalaust æl. Well allavega ætla ég ALDREI að baka pizzu aftur (kannski spelt pizzu þó, það er ekki þurrger í henni) því það að æla henni var ógeðslegt! Gerið gerjaðist í maganum.... hrollur.

Það minnir mig nú á þegar að við Bjarni vorum að byrja saman. Það var á milli jóla og nýárs. Bjarni hringdi í mig og spurði "Hvernig voru jólin hjá þér?" Ég svara "ömurleg" hann var nú mjög hissa á þessum orðum mínum en ég segi svo "eyddi þeim ofan í klósettskálinni" fékk sem sagt ælupest. Nánar tiltekið á jóladagsnótt... og það er hrillingur að æla hangikjöti! Borðaði það ekki næstu tvö jól á eftir en svo ákvað ég að prófa :)

Það væri gaman að sjá sjálfan sig með annara augum!