Koma á óvart.........:)


Mjög svo viðburðarík helgi að baki! Á föstudaginn nutum við, ég og börnin mín veðurblíðunnar og eyddum mestum hluta dagsins utandyra. Vonandi fáum við sem best sumar svo maður geti dynglst úti sem mest :)

Á laugardagskvöldið var ég (ásamt fleirum) svo boðin út að borða með Óla og Sveinu því að Óli var að útskrifast úr Listaháskólanum. Hallur kom með mér og við viltumst svona passlega bara :) En já svo erum við öllsömul kominn á staðinn og í góðum gír þá segir Óla Sól okkur að mamma sín og pabbi væru búin að gifta sig :) þau höfðu sem sagt gift sig um daginn:) Ég var svona smá stund að kveikja á perunni en mér finnst þetta alveg yndislegt hvernig þau gerðu þetta. Við fengum svo að sjá videóupptöku af athöfninni og hún var alveg æðislega falleg :) þó að ég hafi auðvitað viljað fá að vera þar. Þau eru alveg æðisleg og þau ljómuðu :) Verst að ég var búin að æfa sönginn og hann verður ekkert nýttur þannig að ef það er einhver þarna úti sem að vantar söng í brúðkaupið hjá sér þá bara hafa samband :)

Í dag fór ég með börnin mín í afmæli hjá Sylvíu Björt. Það lá ekkert allt of vel á þeim, Bergrún Dögg hafði vaknað 6:30, hún var samt mjög spennt að fara í afmælið en hékk alveg utan í mér og grenjaði ef að ég hvarf úr augnsýn. Sæþór Elí var aðeins pirraður en samt svo góður :) En frábær helgi í alla staði þó að karlinn hafi verið að vinna alla helgina.......


Fína eldhúsið mitt :)


Frábær helgi að baki (segi ég á miðvikudegi) en hún var það samt þó að það séu liðnir þrír dagar síðan :) Við fórum upp í bústað og höfðum það hrikalega gott, það er alveg nauðsynlegt að komast aðeins í "sveita"sæluna úr ösinni og SLAKA Á. Við fórum í sund á Selfossi, lillinn var að fara í sund í fyrsta skipti, það er þessi fína innilaug þarna (meira en hægt er að segja um Kef).

Svo var ég alveg hrikalega dugleg og tók eldhúsið mitt alveg frá a-ö í gærkvöldi. Ég er í einhverju svona "taka í gegn - sortera" stuði og reyni að nýta mér það að sjálfsögðu en mestmegnis á kvöldin, það gengur svona la-la á daginn með gríslingana mína í eftirdragi :)

Díí... þessir bæjarstarfsmenn... urr.... ég er að reyna að ná í eina svoleiðis kerlingu en það bara gengur ekki neitt! Hún veit greinilega hvað ég ætla að vera brjáluð við hana svo að hún er annaðhvort upptekin eða ekki við þegar að ég hringi. Svo er bara opið þarna frá 9-15:30, lokað í hádeginu, alveg hreint fáránlegt!


Spenna þetta aðeins upp :)


Með kúgun píndi Bjarni mig til að klippa sig í gær! Hann var ekkert búinn að raka sig í þá nokkra dagana og ætlaði ekkert að raka sig fyrr en að hann yrði klipptur :) Það var nú reyndar ekki vanþörf á klippingu fyrir kallinn, hann var orðinn ansi hármikill höfðinu á! Pabbi fékk líka klippingu enda kominn tími til. Ég skil ekki hvernig þeir sætta sig við þetta :)

Ég datt sko alveg í fílinginn í dag þegar að ég var hérna bak við hús með börnunum mínum. Það er svo margt sem að okkur langar að gera og þarf að gera í garðinum okkar. Hugmyndirnar flugu um garðinn minn! Það er svo aftur á móti spurning hvað "sambýlingum" okkar finnst um mínar/okkar (nei smá grín, ég ræð ekki öllu :) hugmyndir.

Svo er alveg orðið tímabært að færa smá spennu í þessa síðu, setja inn myndir og fínerí. Það kemur við tækifæri!


Fylgikvillar sumarsins!


Ég er skíthrædd við þessi fljúgandi flikki! Verð bara að viðurkenna það. Heimskulegt að vera hrædd við eitthvað sem að er skriljón sinnum minna en ég :) Já ég er að tala um býflugur og geitunga. Þetta er algjör vibbi... Ég kem eflaust mörgum fyrir sjónir eins og fáviti að sumri til..... ef að ég sé svona kvikindi þá stekk ég til og hleyp alveg á miljón eitthvað út í bláinn.

En ég er nú eiginlega með fóbíu fyrir ÖLLU sem að flýgur (nema Superman). Skíthrædd við fugla! Samt vildi ég einhverra hluta vegna fara í kríueggjaleit með mömmu þegar ég var yngri. Var alveg að farast úr hræðslu :) Man meira að segja eitt skipti sem að ég hreinlega fór að grenja... og var 12 ára!

Við Bjarni vorum eitthvað að flakka um fjölvarpið í gærkvöldi þegar að við fundum Smallville (Superman) sem að er minn uppáhalds þáttur. En hann var reyndar talsettur á frönsku (eða þýsku, man það ekki) svo að ég læt það nú sennilega vera að horfa á það. En það er alveg brandari út af fyrir sig að sjá myndir og þætti sem að er búið að talsetja hvort sem að það er á þýsku, frönsku, spænsku eða einhverju öðru :)


Brummbrumm.....


Þá erum við komin á svaka kagga! Það er að segja ég og börnin mín :) Við Bjarni fórum í gær og keyptum okkur strætó! Já eða þannig, þessa fínu systkynakerru. Hún var svo prufukeyrð í dag og er hún bara hinn fínasti ferðakostur. Sæþór Elí laggði sig bara í aftara sætinu og Bergrún Dögg söng í því fremra :)

En aðal kagginn kemur ekki til landsins fyrr en 25. maí!!!


Ljót á toppnum...


Ég er að verða lélegasti bloggarinn, vil ekki að það gerist svo það er best að gera eitthvað í því :) Var nú reyndar frekar brjáluð í gærkvöldi þegar að ég var búin að blogga alveg helling en nei nei þegar ég ætlaði að posta því þá var blogger.com niðri í klukkutíma og færslan mín týnd og tröllum gefin!

Við erum búin að vera í "orlofi" út í Garði á meðan mamma og pabbi voru úti, fínt að skipta aðeins um umhverfi. Svo var auðvitað frænkupartýið á föstudaginn, það var barasta mjög fínt ;) nema ég sem að ætlaði svo mikið að skemmta mér var orðin mjög þreytt klukkan hálf eitt og fór heim. En ég átti nú samt flottasta múvið ;) þegar ég var að fara og var komin hálfa leið útí bíl uppgötvaði ég að ég hélt á einhverjum poka (fullum af bjór) sem að ég átti ekkert í :) híhíhí.....

Toppurinn á mér er HRIKALEGUR! Ég ákvað að klippa hann aðeins áður en að ég færi í frænkupartýið með líka þessum hræðilegu afleiðingum.








Gullin mín


Góðir bloggarar



Anna Björk
Anna Kristín
Bebba
Birta Rós
Dagga
Eva Rut
Gunnrún
Halla Karen
Hulda
Katrín
Kristín Erla
Sibba
Sveina

Gamalt og gott