Óttaslegin.....


Hrikalega kvíður mig fyrir....... á morgunn....... er ég að fara.......... til TANNLÆKNIS!!! O-Ó ég er svo hrædd við tannlækna :( ég er alveg að pissa í mig úr hræðslu! Svo er ég líka að fara til nýs tannsa, það er að segja ég hef ekki farið til hans áður. En Bjarni er hjá honum og hann kemur alltaf ólaskaður heim svo kannski er ekkert að óttast. En ég óttast samt! Ég bara skil ekki þessa tannlækna fóbíu í mér, ég er svo sem ekkert hrædd við sársauka ef að það þarf að gera við einhverjar tennur heldur finnst mér óþægilegt að liggja þarna með einhvern mann á kafi í munninum á mér. Óþægileg tilhugsun!
Ég sit bara hérna og er að reyna að ákveða hvað ég ætla að hafa í saumaklúbbnum á föstudaginn, þarf að versla á morgunn. Ætla að hafa eitthvað alveg magnað (sem að endar svo eflaust á heita réttinum hennar Írisar, sem bæ the vei er ofboðslega góður - nammi namm).


Mæli með því.....!


Þvottur er uppáhalds heimilisverkið mitt, mér finnst sem sagt mjög gaman að þvottast og tóm þvottakarfa er markmiðið! Það er svo gaman þegar hún er tóm :) En þessa dagana er ég hreinlega með ofnæmi fyrir þvottinum, það er endalaus þvottur og ég nenni eiginlega ekki að þvo og sama hvað ég þvæ mikið það er alltaf allt fullt af þvotti. En mér finnst leiðinlegast að taka til í eldhúsinu eða ég nenni ekki að byrja á því, það er svo sem ekkert leiðinlegt þegar maður er byrjaður á því.
En ég er sko ekkert að reyna að selja ykkur Enjo eða eitthvað svoleiðis, fékk mér reyndar slatta af vörunum núna um daginn and I love them :) Þær eru frábærar! Ég var að vísu að hugsa um að fara að selja þær einhvern tímann á næstunni en ég er hætt við, það hentar mér bara ekki :) Ég ætla að vera heima hjá snúllunum mínum og var að spá í þessu svona að gamni, svona smá kvöldskrepp með gróða :) En ég er engu að síður hætt við svo ég reyni ekki að selja ykkur neitt, vörurnar eru samt frábærar, mæli með þeim :)
Jæja ég er að fara að fela páskaegg :)


Meyja með meiru!!!


Það fer nú alveg að líða að því að ég missi lesendur mína og ég sem er rétt nýbyrjuð að safna!
En ég hef barasta mjög lítið tölvast undanfarið, það er svo sem alveg nóg að gera hjá manni :) Svo er ég svo hrikalega mikil meyja og það sem felst í því er að það þarf allt að vera "svona" og stundum taka hlutirnir aðeins lengri tíma en þeir gætu gert undir eðlilegum kringumstæðum (þeir skilja sem að vilja skilja :)
Enn ein Reykjarvíkurferðin í dag og haldiði að lillinn minn hann Sæþór Elí hafi ekki bara fengið að fara með í Smáralindina! Við fórum öll saman fjölskyldan. Ég keypti mér föt sem að ég var mjög fljót að finna mér og er ánægð með þau, það finnst mér alveg magnað. Yfirleitt tekur það ansi langan tíma! En svona er að vera mamma :) það er yndislegast í heimi! Fór í fermingarveislu síðustu helgi og tveimur mínútum áður en að við lögðum af stað átti ég eftir að mála mig og var ekki lengi að skvetta einhverju framan í mig. Rak svo augun í spegil í veislunni og það var ekki alveg mín flottasta frammistaða framan í mér, svo að mamman er sennilega að breyta meyjunni!


Titillinn endurheimtur!


Þá get ég loksins látið sjá mig á meðal fólks aftur! Ég fór nefnilega í vikunni og lét gera hárið á mér fínt. Svo nú hef ég endurheimt titilinn "Aðal gellan í bænum".
Prófaði að boozta í dag og það var bara "mjög gott" (eins og Bergrún Dögg segir alltaf). Þau feðginin smökkuðu þetta líka svo ég gerði tvo skammta og í þann seinni setti ég banana. (óþarflega miklar upplýsingar? nei það er tilgangur með að ég sé að segja þetta allt:) Þannig er nefnilega að eins mikið og mig langar að borða banana þá bara get ég það ekki! Skil það ekki ég kúgast þvílíkt ef að ég borða banana, hélt að ég gæti borðað hann ef að ég setti hann út í svona boozt, en nei - kom þessu reyndar alveg niður en kúgaðist samt en ekki eins mikið og ef að ég er að borða hann einan sér - þá bara kem ég honum ekki niður :) Þvílíkt svindl því það er svo þægilegt að borða banana, fljótlegt og maður verður saddur af honum og mér finnst hann ekkert vondur á bragðið en mér klígjar samt við honum!?! Skil þetta bara ekki. Gat að vísu borðað banana þegar ég var ófrísk af Bergrúnu Dögg enda er banani í miklu uppáhaldi hjá henni :)
Í vikunni vorum við, ég og börnin mín yndislegu saman útá leikvelli. Sæþór Elí að vísu sofandi í vagninum sínum :) en Bergrún Dögg var að róla og ég að ýta henni (þetta var á leikvellinum hjá pulsuvagninum) þá kemur manngrey sem að ætlaði að fara að fá sér að eta og það vildi þannig til að hann var á station bíl sem var ekkert ósvipaður á litinn og okkar. En allavega þá kallar Döggin mín á hann "pabbi" og ég segi henni að þetta sé ekki pabbi en hún kallar samt aftur "pabbi" og segir svo "þetta er ekki pabbi". Það var nú doldið skondið :)








Gullin mín


Góðir bloggarar



Anna Björk
Anna Kristín
Bebba
Birta Rós
Dagga
Eva Rut
Gunnrún
Halla Karen
Hulda
Katrín
Kristín Erla
Sibba
Sveina

Gamalt og gott